Heimilisritið - 15.06.1952, Page 38

Heimilisritið - 15.06.1952, Page 38
mig. ... í alvöru?“ spurði Ric. hard hugsandi. „Ég er hræddur um, að ég kunni ekki réttu að- ferðina til að vinna hana.“ Edith var alvarlega hneyksl- uð. „Jú, auðvitað kanntu það! Þú skalt bara sýna henni yfir- læti. Það er það eina, sem við berum virðingu fyrir! Ég get fullvissað þig um, að því meir sem þú setur þig á háan hest og lítur niður til hennar, því ólm- ari verður hún eftir þér!“ „Heldurðu það! Það var svei mér gott, að ég skyldi tala um þetta við þig ... ég læri svo margt og mikið af þér, Edith.“ „Já,“ sagði Edith, en það lét helzt í eyrum eins og andvarp. „Hvenær áttu að hitta hana næst?“ ,,Á morgun, Við ætlum út að drekka te saman ... hvert finnst þér ég ætti að fara?“ „Til Rigger. Það er svo vin- sæll og kyrrlátur staður, þar sem hægt er að láta fara vel um sig og tala saman í næði.“ ÞAÐ var dauft ljós í litla veit- ingasalnum og mjúk teppi á gólfinu ... það var sannarlega viðfelldinn staður. „Var það hér, sem þið voruð?“ sagði Edith og settist. ..Hvern- ig fannst henni það?“ „Ágætt,“ sagði Richard, ..en þó held ég að mér lánist þetta aldrei, samt sem áður. Það hlýt- ur að vera vegna þess, að ég veit ekki rétt vel, hvernig ég á að haga mér. Getur þú gefið mér nokkur góð ráð?“ „Hvers vegna ferðu ekki með hana á baðströndina? Þá getið þið verið alein saman í heilan dag ... Þú gætir ekið þangað í bílnum.“ „Get ég verið þekktur fyrir að bjóða henni upp í þennan gamla skrjóð?“ „Já, þó það nú væri! Hann er alveg sómasamlegur. Og það má þá líka einu gilda, hvernig hann lítur út ... ef þið bara eruð sam- an.“ „Já, það er alveg rétt hjá þér,“ sagði Richard. „ÞÚ MÁTT trúa því, að það var dásamlegt!“ Rödd Richards var full hrifn- ingar í símanum. „Ég hef svo afar margt að segja þér. Eigum við ekki að hittast á sama stað og síðast?“ „Æ, nei. Þar er alltof margt fólk. Þar er ekki hægt að tala saman í næði.“ „Jæja, þá skal ég segja þér, hvað við gerum,“ sagði Richard, sem auðsjáanlega datt eitthvað snjallt 1 hug. „Við ökum niður 36 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.