Heimilisritið - 15.06.1952, Side 39

Heimilisritið - 15.06.1952, Side 39
á ströndina. ... Þá get ég sýnt þér alla staðina, þar sem við vorum, og sagt þér, hvernig það gekk allt saman." „Geturðu ekki sótt mig snemma í fyrramálið? Ég tek nestiskörfu með!“ Þetta var síðast í september, en loftið var svo hlýtt og vatn- ið jafn blátt og um hásumar. Á leiðinni niður að ströndinni, hafði Richard orðið að skýra frá öllu, sem skeð hafði, en hann var einna mælskastur, þegar hann lýsti sinni heittelskuðu. „Hún ljómaði beinlínis af feg- urð, máttu trúa! Hún var með svartan hatt með hvítum blóm- um, og í kjól úr einhverju fis- léttu, sem blaktir til ... og með fjölda af fellingum. Og hárautt belti.“ „Næstum eins og kjóllinn, sem ég var í um daginn?“ spurði Edith. „Já, nú þegar þú minnist á það, ... hann var nauðalíkur kjólnum þínum. Yndislegur!“ „Hvað sagðir þú svo við hana?“ „Ég sagði, að ég elskaði hana. Óstjórnlega! Og fyrst varð hún æf, ... en svo byrjaði hún að 'gráta. Hún er afar kvenleg. En það er einhvem veginn, eins og hún sé gerð úr tvennskonar þáttum, annar er blíður og SUMARHEFTI, 1952 kvenlegur, hinn stoltur og harð- ur.“ „Ó, það er alveg eins og hún var í kvikmyndinni sem við sá- um í fyrri viku, þú manst.“ „Já, alveg rétt! Ó, Edith, þú getur ekki hugsað þér, hvernig það er, að önnur eins stúlka og Honoría skuli hafa veitt mér ást sína!“ „Já, það hlýtur að vera ynd. islegt,“ sagði Edit.h, og það fór lítilsháttar hrollur um hana. „Er þér kalt?“ spurði Richard. „Nei, ekki vitund. Ég veit ekki af hveriu ég skalf svolítið. Jæja, hvað skeði svo meir?“ „Hún vildi íara heim. En það vildi ég ekki heyra minnzt á. Ég sagði bara í einbeittum tón, að nú yrði hún að velja. Ef hún vildi ekki verða mín, þá yrðum við að skilja.“ „Og hvað svo?“ spurði Edith svo lágt, að Richard heyrði það ■varla. „Ja, svo ... nei, heyrðu nú!“ greip hann fram í fyrir sjálfum sér, „það eru þó takmörk fyrir því, sem maður getur trúað öðrum fyrir, ... jafnvel beztu vinum sínum. Því ég tel þig með þeim. Gerir þú það ekki líka?“ RICHARD þurfti alls ekki að segja henni, hvað hefði gerzt. Edith gat hugsað sér það allt. 37

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.