Heimilisritið - 15.06.1952, Síða 40

Heimilisritið - 15.06.1952, Síða 40
Hann hafði auðvitað kysst hana til að byrja með. Vitanlega. Og hún hafði endurgoldið kossa hans. En hvað það hlaut að vera dásamlegt að vera Honoría ... svona rík, svona glæsileg ... og hafa mann eins og Richard til að dást að sér. Hún leit á hann ... en hvað hann var í rauninni álitlegur! Richard var einn af þeim mönnum, sem manni leizt betur og betur á, þegar maður kynntist honum. „Hvað nú?“ greip Richard fram í hugsanir hennar. „Ég veit ekki hvernig ég á að fá föður hennar til að gefa samþykki sitt. Hann verður áreiðanlega mót- fallinn þessum ráðahag.“ „Þú verður að ráða fram úr því,“ svaraði Edith og leit und- an ... það var andstyggilegt hversu sólskinið skar í augun ... þau fylltust af vatni. „Ef ekki dugar annað, verðurðu að nema hana á brott. Heyrðu, stanzaðu hérna, eigum við ekki að setjast þarna í brekkuna og borða!“ Edith stökk fyrr út og hljóp á undan ... hún varð að snýta sér, áður en Richard tæki eftir nokkru ... hann gæti haldið, að hún væri í þann veginn að gráta. Hún reyndi að depla augunum og hrekja burt tárin, en hnaut í sama bili um stein. Hún datt ... og svo varð allt dimmt fyr- ir augum hennar. Þegar hún rankaði við sér, lá hún með höfuðið á hné Ric- hards, og hann strauk henni blíðlega um vangann og sagði lágt: „Finnurðu mikið til, góða? Liggðu bara róleg.“ Og svo þrýsti hann höfði hennar bíðlega að sér. Edith fannst það dásamlegt. en svo datt henni Hónoría í hug. og rétti sig ofurlítið upp. „Svona, nú líður mér betur. Richard. Ég skil ekki, hvernig ég gat verið svona klaufaleg." Richard hélt á henni í fang- inu upp að næsta sveitabæ. Þeg- ar maður er meiddur á fæti, er þægilegt að láta fara með sig eins og lítið barn. Það var hringt eftir lækni, sem lofaði að koma svo fljótt sem hann gæti. Það voru ung hjón, sem þarna bjuggu, og þau voru væn og hjálpsöm. Edith var lögð á legu- bekk í beztu stofunni, og á með- an konan hitaði kaffi, varð Richard að fara með manninum út í fjós og dást að kúnum. Það var afar hljótt í stofunni. Edith leit umhverfis sig, þarna var bæði grammófónn og útvarp og á borðinu við hið hennar lágu blöð. Hún tók blað og leit á mynd- 38 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.