Heimilisritið - 15.06.1952, Qupperneq 46

Heimilisritið - 15.06.1952, Qupperneq 46
„Hefurðu reynt að tala um þetta við hann?“ „Ég hef reynt að beina samtali okkar að Millinger. Ég hef stungið upp á, að ég færi með honum, ef til vill gæti ég gert eitthvað fyrir Millinger; en það vill hann alls ekki heyra minnzt á. Það er eins og allt viðvíkjandi þessum manni geri mig hrædda, og það versta er, að nú er ég líka farin að verða hrædd um Henry. Ég hef hugsað um, að í raun og veru viti ég svo lítið um hann. Eini ættinginn, sem hann hefur kynnt mig fyrir, er gömul frænka í Exeter.“ „Ég hef oft hugleitt, að Henry virðist nokkuð dulur,“ sagði Mary. „Hann talar varla nokk- urn tíma um sjálfan sig, í mót- setninigu við Edward, til dæmis, sem naumast getur talað um annað en blaðið og prentsmiðj- una. Lastu frásögnina af Bur- ghess-málinu? Það á reyndar að hengja hann einhvern daginn. Konan hans vissi ekkert um, að hann væri stórþjófur og morð- ingi, hún hélt hann ynni fyrir sér sem tryggingaumboðsmað- ur.“ „Þú ert þó ekki að gefa í skyn, að Henry sé stórþjófur og morð- ingi?“ Joyce hló óeðlilegum hlátri. „Auðvitað ekki,“ flýtti Mary sér að segja, „en ég gæti hugs- að mér, að það væri enginn Millinger, sem Henry heim- sækti, heldur ef til vill ... já, ég verð að segja það blátt áfram, það er máske kvenmaður!" JOYCE kipptist ofurlítið við. Þetta var það, sem henni hafði sjálfri komið í hug, en blygðazt sín fyrir, því henni fannst ekki rétt af sér að tortryggja Henry. Hún hafði ekki heldur neitt út á hann að setja. Hann var sami góði eiginmaðurinn, sem hann hafði verið í byrjun hjónabands- ins. Ekkert benti til, að hann væri orðinn leiður á henni, eða sæi eftir að hafa kvænzt henni. „Hvað finnst þér ég ætti að gera?“ Hún andaði títt. „Komast að sannleikanum. Það er ástæðulaust að kveljast af áhyggjum. Sem kona hans átt þú kröfu til að vita, hvert hann fer og ef hann gabbar þig, áttu að taka til þinna ráða. Kona á ekki að láta bjóða sér hvað sem er. Þú sagðir, að hann ætti frænku í Exeter — hringdu til hennar og spurðu hana um Mill- inger, en gerðu það á þann hátt, að hana gruni ekki neitt.“ „Finnst þér það ekki rangt af mér?“ „Ef Henry færi aðeins stöku sinnum burt frá þér til þessa 44 HEIMILISRITIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.