Heimilisritið - 15.06.1952, Page 48

Heimilisritið - 15.06.1952, Page 48
betur?“ Joyce talaði í beisk- um tón, svo bætti hún við ásak- andi: „Þú blekkir mig, Henry, þú hefur blekkt mig í hvert sinn,-sem þú hefur sagzt þurfa að heimsækja Millinger, því hann er ekki til, og það veiztu eins vel og ég.“ Henry stirðnaði og andlitið varð dökkrautt. „Þú veizt .. .?“ tautaði hann. „Já, ég veit að Millinger dó fyrir þremur árum.“ Joyce virti hann fyrir sér og tók eftir svip- breytingunni og svitadropunum á enni hans. „Joyce, vertu nú skynsöm,11 hann færði sig feti nær henni. HÚN hörfaði. Hvað veit ég eiginlega um hann? spurði hún sjálfa sig og minntist orða syst- ur sinnar um Burghess, stór- þjófinn og morðingjann, sem af ættingjum og vinum var álitinn góður eiginmaður og ötull tryggingasali. Nei, hún vissi ekkert um Henry. Hann kveikti sér í sígarettu, en slökkti svo í henni strax aft- ur. „Nú veit ég, að þú hefur ekki verið hjá Millinger,“ sagði hún hvasst, „hvar hefur þú þá verið? Þegar þú hefur sagt mér það, skal ég segja þér, hvaðan ég kem.“ „Ég var í viðskiptaferð.“ ,,Viðskiptaferð!“ Hún leit hæðnislega til hans. „Henry, til lengdar gætir þú ekki leynt mig, hvert þú ferð, fyrr eða seinna fæ ég að vita það.“ Það var sem orð hennar yrðu honum ærið umhugsunarefni. Hann stóð og horfði fram und- an sér og heyrði enn orð henn- ar í eyrum sér: Fyrr eða seinna fæ ég að vita, hvert þú ferð! Hann gekk að borðinu og’ studdi sig við það, svo byrjaði hann að tala, en án þess að líta á hana. „Það er rétt — fyrr eða seinna færð þú að vita sannleikann, og þess vegna get ég eins vel sagt þér það nú. Þú hefur rétt fyrir þér í grun þínum, það er önnur kona. Ég hélt því væri lokið, en það tókst ekki — ég ætlaðist til, að því væri lokið, er ég kynntist þér ...“ „Ég vissi það!“ Það var bæði sigurhrós og beiskja í röddinni. Játning hans gerði út um allt. „En svo hitti ég hana aftur.“ hélt Henry áfram. „Ég hef oft ætlað að segja þér það. En, já, mig brast kjark,“ bætti hann við afsakandi. „Það er ekki meira um það að tala. Auðvitað ertu frjáls, Henry, ég er ekki ein af þeim konum, sem halda í menn sína. 46 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.