Heimilisritið - 15.06.1952, Side 51

Heimilisritið - 15.06.1952, Side 51
þessa peninga skyldi hún vissu- lega fá greiddá við fyrsta tæki- færi! En samt myndi ekki rétt að staðhæfa, að þetta hefði verið eina ástæðan til þess, að Billy Ashton fór viku eftir viku til Jannie frænku til að borga upp í skuldina. Það verður að' minnsta kosti að bæta því við, að þessar heimsóknir veittu honum mjög svo kærkomin tæki- færi til að hitta Ednu Sarnes — unaðslega stúlku, sem um þess- ar mundir dvaldi hjá Jannie frænku. Maður má að minnsta kosti geta sér þess til, að dvöl hennar á heimilinu hafi ekki dregið úr hinu tíðu heimsókn- um hans — einkum að því at- huguð'u, að samtímis því, að síðasta afborgun var greidd, heppnaðist honum að biðja Ednu Sarnes, án þess Jannie frænka vissi af. Ef til vill hefur Jannie Hop- kins fundizt það vera að launa gott með illu, að hann vildi hrifsa Ednu frá henni. Þess vegna gerði hún allt, sem í henn- ar valdi stóð, til að ráða Ednu frá að binda trúss sitt við' Billy Ashton-------að minnsta kosti fékk Edna það heilræði að halda fast í taumana — einkum skyldi hún sporna við því með öllum ráðum, að hann kæmi nokkra sinni framar nálægt spilaborði. Þannig gekk það til, að Billy varð að lofa henni hátíðlega að snerta aldrei spil .. . og ástfang- inn maður er, eins og alkunnugt er, til með að lofa hverju og einu, sem hin heittelskaða kann að fara fram á! HJÓNABAND Ednu og Billys virtist ætla að verða hið farsælasta, og þau höfðu líka allt, sem þurfti til þess, að svo gæti orðið. Þeim þótti innilega vænt hvort um annað — þau áttu sameiginleg áhugamál, og Edna gerði hvað hún gat til að gera Billy lífið ljúft. Við þetta bættist, að verzlunin, sem Billy hafði stofnað', gekk vel og óx — og einmitt, þegar auka þurfti starfsemina með alhniklum til- kostnaði, dó Jannie frænka, eft- ir að hafa arfleitt Billy og Ednu að öllu sínu. Skömmu eftir jarðarförina fór Edna í nokkuira vikna heimsókn til vinkonu sinnar, en Billy átti allt of annríkt til að geta farið úr borginni. ÖRLÖGIN höguðu því þann- ig til, að strax fyrsta daginn, þegar Billy sem grasekkjumað- ur borðað'i kvöldverð í eina sómasamlega veitingahúsi borg- SUMARHEFTI, 1952 49

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.