Heimilisritið - 15.06.1952, Page 57

Heimilisritið - 15.06.1952, Page 57
Hcafileikamaðurinn Minnisstæð smásaga þýdd úr ensku ÉG HEF unnið af ósérhlífni alla tíð. Ævi mín hefur borið merki um hollt og hófsamt líf- erni. Ég hef reynt að fylgja öll- um þeim lífsreglum, sem for- eldrar mínir settu mér, þegar ég var að leggja út í lífið — aldrei að gefast upp, minnstu hérans og skjaldbökunnar, reyndu, reyndu aftur, starf og aftur starf, reglu- legar lífsvenjur, hugsaðu um eyririnn, komdu fram við aðra eins og þú vildir, að komið væri fram við þig, byrjaðu neðst og reyndu ekki að hlaupa fyrr en þú getur gengið, snemma að sofa og snemma á fætur, lifðu inn- an þeirra takmarka, sem tekj- urnar leyfa og legðu fyrir, til þess að mæta erfiðu ári, vertu þrautseigur, og þú munt komast áfram ... Ég hef seiglazt og óg hef ekki komizt áfram. En Danni Freeman hefur komizt áfram. Og í því liggur óréttlætið. Ég hef enga löngun til að vera ranglátur í garð Danna. Við er- um þrátt fyrir allt mjög góðir vinir. Sir Daniel Freeman, með hálft stafrófið í titlaskammstöf- unum fyrir aftan nafnið, at- kvæðamaður í opinberu lífi, og það er ekki mitt að gagnrýna hann. Hann er einn hinna fáu raunverulegu auðmanna, sem enn eru til eftir 1950, hann er þekktur og virtur og öllum fell- ur vel við hann, allt frá ráðherr- um til hreingerningakonunnar hans. Hann er persónugervingur velgengninnar. Og þó — sú hugsun veldur mér mestum hugarkvölum------- er hann næstum allt, sem í upp- vextinum var brýnt fyrir mér að forðast. Við vorum saman í skóla, Danni og ég. Danni var aldrei sérlega framarlega í námi eða íþróttum: hann tók aldrei neitt nógu alvarlega. Hann var alveg sérstaklega hirðulaus ung- lingur, var ætíð að týna hlut- unum. „Vertu nú svo góður að lána mér knattspyrnubuxurnar þín- SUMARHEFTI, 1952 55

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.