Heimilisritið - 15.06.1952, Qupperneq 62
Ég sagði honum, að ég væri ó-
mögulegui' í tölum. Ég sagði, að
ég hefði ekki mikinn áhuga á
þeim, og ef þetta væri allt, sem
hann gæti boðið mér —“ Danni
saug upp í nefið. „Þröngsýnn
maður, Mackenley. Hugsar að.
eins um pund, shillinga og pens.
En Gosling er bezti karl, þú
veizt. Við leikum báðir golf í
Sandfields — könnumst vel hvor
við annan í sjón —“
Ég sleit símasambandinu, því
ég gat ekki komið upp nokkru
orði. Síðar frétti ég, að Danni
hefði komizt í kynni við Gosling
með því að tala um golf og lax-
veiðar. Hann hafði líka gefið
honum tíu shillinga vindil. Að
síðustu hafði hann svo beðið rit-
ara Goslings að hringja á leigu-
bíl, þegar hann ætlaði að fara.
Allt virtist þetta hafa mikil á-
hrif á lávarðinn, sem fékk hið
mesta traust á Danna.
Ég var orðlaus yfir hinni kald-
rifjuðu ósvífni Danna. En þetta
var ekkert hjá því, sem ég átti
eftir að reyna nokkrum vikum
síðar. Gosling lávarður kallaði
mig inn í skrifstofu sína, sem
líktist einna helzt nítjándu ald-
ar dyngju. Hjá honum var
Danni, hinn glæsilegasti í nýj-
um fötum.
„Johnson," sagði lávarðurinn
vingjarnlega, þegar ég kom inn.
„Þetta er herra Freeman, sem er
að taka við stjórn útflutnings-
deildarinnar. Ég ætla að biðja
yður að aðstoða hann eins og yð-
ur er unnt.“
ORÐLAUS af undrun tók ég
í höndina á Danna eins og ég
hefði aldrei hitt hann fyrr. Það
var bersýnilegt, að Danni hafði
á ný stytt sér leið. Gosling lagði
föðurlega höndina á öxl Danna:
„Reynsla Johnsons verður yður
ómetanleg, það get ég fullyrt.
Hann verður yðar hægri hönd.“
Lávarðurinn leit brosandi til
okkar. „Jæja, ég læt ykkur nú
báða um að kynnast ... ég sé
yður, Freeman, við ána á morg-
un, er það ekki?“ Hann fylgdi
okkur til dyra og lokaði á eftir
okkur.
Danni vísaði mér inn í nýju
skrifstofuna sína. Ég beit saman
tönnum af reiði og öfund. Það
var langsamlega bezta herberg-
ið í byggingunni, að undantek-
inni skrifstofu Goslings. Með
vaxandi undrun tók ég eftir því,
að Danni hafði tvo einkaritara.
laglegustu tátur, og þar að auki
sérstakan bókhaldara (það hafði
tekið mig fjögur ár að fá einn
einkaritara). Hann hafði einnig
þykkt teppi á gólfinu, sem voru
sérréttindi, sem aðeins fram-
kvæmdarstjórar höfðu. Skrif-
60
HEIMILISRITIÐ