Heimilisritið - 01.08.1955, Blaðsíða 36
bergen“, og við verðum að hafa ein-
livern til þess að taka á móti þeim, sem
sér um að þeir verði í Chicago á föstu-
dag. Við höfum frumsýningu á mynd-
inni í Chicago á sunnudag, og Thome
og hinir fara beint þangað.
Rebecca Lane, fegursta stjarna mynd-
arinnar, er í New York, en hún flýgur
til Chicago fyrir föstudag, svo að við
getum haft æfingu á hinum litla afríska
sirkus okkar.
Jæja, eins og þér sjáið, er þetta allt
ósköp augljóst. Við verðum aðeins að
hafa einhvern til að taka á móti hin-
um ágæm hausaveiðurum kl. 6.30 á
mánudagsmorguninn á bryggju númer
6, en eftir það getur leiðangurinn til
Chicago hafizt. Þér skiljið einnig, að
ég hefði gjaman viljað taka að mér þetta
starf, en ég hef því miður of mikið að
gera á skrifstofunni.
Það er því annar, sem orðið hefur
svo heppinn að fá rúsínuna í pylsuend-
anum, og vitið þér hver það er. Þér
megið geta þrisvar. . . . Alveg rétt!
Ég læt yður eftir að ráða fram úr
öllum smáatriðum, þar á meðal, hvem-
ig þér farið að því að flytja hina svörtu
gesti okkar til Chicago. Það em flóð
um allt á þeim slóðum, en þér megið
mín vegna sigla þessum hermönnum
þangað á húðkeip; aðeins að þeir séu
komnir þangað fyrir föstudag. Það er
ef til vill betra að bíða með að gera
nokkra nánari áætlanir, þar til þér hafið
athugað náungana svolítið.
Yður mun ekki ganga erfiðlega að
þekkja þá, þegar þeir fara frá borði, því
það er næstum fullvíst, að þeir verða
einu mennirnir, sem koma í land af s/s
„Spitsbergen" klæðlausir og með spjót
í hendi.
Góða skemmmn
Richard.
HRAÐSKEYTI
RICHARD L. REED
FIX FILM, HOLLYWOOD
Þakka traustið, en eigi að veiða mig
þarf ekki að senda á mig hausaveiðara.
Skuldheimtumennirnir sjá um það.
Georg.
HRAÐSKEYTI
GEORG SEIBERT
HÓTEL MAYFLOWER
WASH. D. C.
Verið ekki að setja yður á háan hest,
Georg, þessir svörtu herramenn em
ráðnir hjá fyrirtækinu. Þeir em vafa-
laust menntaðir og vel uppaidir og nota
aðeins spjótin til þess að stanga úr tönn-
unum. Verið nú góða barnið.
Richard.
HRAÐSKEYTI
RICHARD L. REED
FIX FILM, HOLLYWOOD
Heyrið mig nú Richard, ég er alltaf
boðinn og búinn til þess að vinna að
hagsmunum Fix Film, en þegar þið opn-
ið mannætudeild er ég ekki til viðtals.
Ég þekki náunga, sem vinnur við dýra-
garðinn í New York. Á ég ekki að biðja
hann um að sjá um málið, þá get ég
haldið áfram við þá vinnu, sem ég er
vanur.
Georg.
HRAÐSKEYTI
GEORG SEIBERT
HÓTEL MAYFLOWER
WASH. D. C.
Er nú ekki lengur hægt að treysta
nánustu samstarfsmönnum sínum? Þess-
ar mannætur em af bezm tegund, vald-
ar af Bill gamla Jenkins, scm útvegaði
okkur alla þá innfæddu, sem við not-
uðum í kvikmyndinni. Hann er ágætur
og það em hausaveiðararnir líka. Ef ég
34
HEIMILISRITIÐ