Heimilisritið - 01.08.1955, Blaðsíða 22
BRIDGE-Þ ATTUR
S: 8 5 3
H: G 7
T: D 9
L: Á D G 8 4 3
S: K D 10 9
7 2
H: K 8 3 2
T: —
L: 10 7 2
S: 6
H: Á D 10 6
T: K G 10 7 5 2
L: K 5
N—S voru á hættusvæðl en A—V utan.
S gaf og sagði 1 tígul. N sagði 2 lauf, A
2 spaða og þar með hljóp af stað hin al-
genga sagnskriða, sem endaði með 5 tígl-
um hjá S (við 4 spöðum hjá A). V dobl-
aði sögnina og lét út spaðaásinn og síðan
spaðagosann, sem S trompaði. Sagnhafi
kannar nú trompleguna, lætur lágt heima
en drottninguna úr borð. V gefur en A
fylgir ekki lit. Nú verður sagnhafi að
skipta um áætlun, (ef trompin hefðu legið
einum betur, hefði allt verið einfalt), en
nú er það ljóst að V fær tvo slagi á tromp
ef því er spilað aftur, því hann tekur þá
með ásnum og spilar spaða og er þar með
orðinn lengri í trompinu. Líkur mæla með
að A hafi lijartakónginn, þar sem V hefur
sýnt 2 ása. Hjartagosa er því spilað og
hann gefinn, aftur hjarta tekið með
drottningu, síðan teknir tveir slagir á lauf
og spaði trompaður heima með sjöinu, sið-
an tekur S hjartaásinn og þar sem 7 fylgir
lit er allt í lagi, nú er síðasta hjartanu
spilað og V fær aðeins á trompásinn og
vinnur S þannig sögnina.
Aftur á móti mundu 5 lauf tapast, þar
sem V mundi taka spaðaútspil með ás,
taka tígulás og A mundi trompa tígul.
Bridgeþraut
S: Á K
H: 7
T: Á G 6 5 4
L: 4 3
S: G 10 8 6 3
H: G
T: 3
L: G 10 2
S: D 9 5 4
H: 9
T: K
L: Á D 7 6
Hjarta er tromp. S á útspil. N—S eiga
að fá 8 slagi.
Lausn ó síðustu þraut.
N trompar lágan spaða og tekur annan
hæsta í trompinu. S gefur sitt liæsta í,
síðan trompar S laufdrottninguna með
hærra trompinu, og spilar trompi og tekur
bæði tromp V. Næst er lauffimminu spil-
að, en A lendir nú í vandræðum með af-
kastið og S fær 3 síðustu slagina á spaða,
eða 2 á spaða og einn á tigul.
S: A G 4
H: 9 5 4
T: Á 8 6 4 3
L: 9 6
N
V A
S
20
HEIMILISRITIÐ