Heimilisritið - 01.08.1955, Blaðsíða 46
Danslagafextar
ABBA-LÁ
(Lag og texti: Helgi Ingimnndarson —
Snngið af Hauk Morthens á H.M.V-
flötu No. JOR220)
Yndisfríð, Abba-lá,
unaðsblíð, hýr á brá,
er sú mær, sem að allir vilja fá.
Ástúðleg, Abba-lá,
ennþá þig enginn á,
elsku saklausa, góða Abba-lá.
Gef mér einn — nei, nei, nci.
Aðeins einn — þei, þei, þei.
Bara einn — svei, svei, svei
þvíumlíkt gengur ei.
Segðu já, Abba lá.
Má ég fá, Abba-lá,
fá einn koss, elsku bezta Abba-lá?
ÉG ER KOMINN HEIM
(Lag: Stuart Hamblen. — Texti: Loft-
ur Guðmundsson. — Sungið af Hauk
Morthens á HMV flötu JOR220)
Hér stóð bær með burstir fjórar,
hér stóð bær á lágum hól.
Hér stóð bær sem bernskuminning,
O'
vefur bjarma af morgunsól.
Hér stóð bær með blóm á þekju,
hér stóð bær með veðruð þil.
Hér stóð bær, — og veggjabrotin
ennþá ber við lækjargil.
Hér stóð bær, sem hríðin barði,
hér stóð bær, sem veitti skjól.
Hér stóð bær, sem pabbi byggði
undir brekku, á lágum hól.
Hér stóð bær, sem blíðust móðir
vígði bæn og kærleiksyl.
Hér stóð bær, — og veggjabrotin
cnnþá ber við lækjargil.
Eg er kominn heim í heiðardalinn.
Ég er korninn heim með slitna skó,
kominn heim til að heilsa mömmu,
kominn heim í leit að ró,
kominn heim til að hlusta á lækinn,
sem hjalar við mosató.
Ég er kominn heim í heiðardalinn.
Ég er kominn heim með slitna skó.
BORGIN VIÐ SÆINN
(Sungið á Tónika-hljómplötu af
Leikbræðrum)
Og mildur blærinn í borginni við sæinn
söng í björkunum kveðjuljóð til mín,
og þangað hvarflar minn hugur margan
daginn,
þegar hafið í geislaflóði skín.
Ljómar þín brá kæra vina, í hug mínum
heið,
brosandi tjá þínar blómvarir draum-
ljúfan seið.
Og þegar blærinn í borginni við sæinn
í björkunum syngur um vorfagra þrá,
við sjáumst aftur þá.
Þetta skuggasæla kvöld
finnst mér draumur míns lífs vera liðinn
þegar legg ég úr höfn,
því ég kvaddi þig, vinstúlkan mín.
Mundu mig, Sagðir þú,
er við hlýddum á hafölduniðinn.
Lifðu heil, sagði ég,
því með vorinu ég aftur kem til þín.
I
44
HEIMILISRITIÐ