Heimilisritið - 01.08.1955, Blaðsíða 39
sen skipstjóri stóð fyrir utan og horfði
i, og leit út eins og hann langaði mest
til þess að loka mig inni með hinum
mannætunum.
Það lítur því út fyrir að þetta ætli
að blessast. Og nú höldum við til Chi-
cag°-
Með spjóti og fjaðraskrauti.
Georg.
HRAÐSKEYTI
GEORG SEIBERT
HÓTEL STATLER, NEW YORK
Kæri Georg! Þér höfðuð rétt fyrir
yður. Hinir svörtu vinir okkar eru allt
of ómenntaðir til þess að, hægt sé að
fara með þá í sýningarferð. Látið þá
vera í skipinu og bíðið þýðingarmikils
flugpóstsbréfs. Richard.
F I X F I L M
HOLLYWOOD
Flugpóstur io. júlí
Georg Seibert
Hótel Statler, New York
Kæri Georg, mér þykir vænt um að
mér tókst að stöðva yður, áður en þér
hélduð af stað með þessar mannætur.
Hinn ágæti leikstjóri okkar, Conrad J.
Thorne, er ágætis maður, en honum
hættir við að taka hlutina of alvarlega.
Hann er alltaf að gorta af því, að hann
liafi ráðið niðurlögum innfædds glæpa-
hrings á Nýja-Sjálandi einsamall með
fílabyssu að vopni, og lagt að velli
stærðar tígrisdýr með vasahnífnum sín-
um, eða var það með naglaþjöl?
En í þetta sinn hefur hann farið yfir
strikið við að útvega okkur ekta lit á
fyrirtækið. Eg er nýbúinn að fá bréf frá
Bill Jenkins frá Nairobi og hann skrifar,
að hr. Thorne hafi heimtað ekta og ó-
sviknar mannætur, svo Jenkins fór Iengst
inn í frumskóginn og sótti sex af villt-
ustu villimönnunum í öllum myrkviðum
ÁGÚST, 1955
Afríku. Hann skrifar að þegar kyn-
flokkurinn, sem þeir cru af, éti kristni-
boða, þá éti þeir þá með hatti, stígvél-
um og öllu saman. Svo hann ráðleggur
okkur að fara varlega að þeim, þegar
hr. Thorne sé ekki viðstaddur.
Þetta er þokkalegt ástand, Georg.
Við höfum eytt fullt upp af tíma og
peningum í að flytja hingað sex mann-
ætur, sem eni svona bandóðir, og allt er
það að þakka hinum ágæta Thorne.
Auðvitað gætum við haldið þeim frá
mannáti, meðan þeir eru hér, því við
höfum þó hagkvæmari fæðutegundir hér
á landi, og við höfum einnig lögregluna,
ef þeir reyndust óviðráðanlegir. En við
þorum samt sem áður ekki að sleppa
sex mannætum af slíku tagi í sýningar-
ferð, því hugsum okkur ef þeir yrðu
skyndilega óðir, og tækju að vingsa um
sig hnífunum. Það gæti auðveldlega ein-
hver meiðzt.
Ég er eins og áður er sagt, glaður yf-
ir að hafa getað stöðvað yður í tíma,
Georg. Eg þori ekki að hugsa til þess,
hvað hefði getað komið fyrir, ef þér
hefðuð haldið af stað til Chicago með
þessa náunga í eftirdragi. Þetta hefði
getað leitt til geysilegra skaðabótamála,
og þó þeir hefðu vakið óstjómlega eft-
irtekt, þá gemr maður stundum keypt
jafnvel auglýsingar of dým verði.
Púh! Ég hef ágæt laun, en smndum
finnst mér þau of lítil.
Kær kveðja. Richard.
H Ó T E L S TAT L ER
NEW YORK
Flugpóstur ii. júlí
Hr. Richard L. Reed auglýsingastjóri
Fix Film, Hollywood.
Aðeins nokkur orð í flýti til þess að
láta yður vita, að ég hef ekki tíma til
37