Heimilisritið - 01.08.1955, Qupperneq 42
RICHARD L. REED
FIX FILM, HOLLYWOOD
Ef þér haldið áfram að hæðast að yf-
írvöldunum, get ég ekki hjálpað yður.
H. L. Twine
H. L. TWINE
FORINGI
UMFERÐARLÖGREGLUNNAR
OHIO
Farið þér til fjandans. Ég sný mér til
útvarpsins.
Richard. L. Reed.
Halló, Halló! Þetta er útvarpsstöðin
KLMNOP Columus, Ohio. Við hætt-
um snöggvast að leika sextett Schuberts
til þess að lesa áríðandi tilkynningu. I
kvöld er hinu umflotna fólki á flóða-
svæðunum { Ohio ógnað af nýrri og al-
varlegri hættu. Sex villtar mannætur
leika lausum hala . . .
HRAÐSKEYTI
RICHARD L. REED
FIX FILM, HOLLYWOOD
Þetta er ágætt, gamli vinur. Haldið
áfram. Eftir útvarpstilkynninguna er
sagan á forsíðu allra blaða. Við höfum
það ágætt. Ég treð slíku feikna fári af
mat í mannæturnar, að það væri óhætt
að sleppa þeim lausum í slátrarabúð, án
þess að þeir svo mikið sem snertu við
steikarlæri. Það cina, sem veldur mér
áhyggjum, er að þeir eru sífellt að
brýna bölvaða sláturhnífana. Ég hefði
ekki átt að gefa þeim þetta brýni, en
ég áleit, að það myndi fá þcim eitt-
hvað að gera, og það hefur það líka
svo sannarlega gert. Nú fer þetta að
styttast. Ég geri ráð fyrir að við sitjum
föst einhvern tíma snemma á morgun,
cn það er betra, að þér vitið ekki, hvar
það verður. Haldið þér bara áfram með
útvarpstilkynningar. Þér standið yður
vel. Georg.
H. L. TWINE
FORINGI
UMFERÐARLÖGREGLUNNAR
OHIO
Nú liggur mikið við. Er nýbúinn að
fá símskeyri frá hinni horfnu bifreið.
Skeytið er sent frá Eagle Rock, og bif-
reiðin er á leið gegnum Ohio til Chi-
cago. Sendið eins margar bifreiðar og
þér gerið án verið út á flóðasvæðið.
Sendið báta, sendið „Queen Mary“ ef
yður sýnist svo, en finnið bifreiðina, áð-
ur en Rebecca Lane og Georg Seibert
hafa verið höggin í spað og étin af
mannætum inni í nnlju Ohio-ríki.
Richard. L. Reed.
RICHARD L. REED
FIX FILM, HOLLYWOOD
Höfum leitað í alla nótt en ekki fund-
ið tangur eða tötur af bifreiðinni. Hafið
þér reynt að spyrja í aðliggjandi ríkj-
um?
H. L. Twine
H. L. TWINE
FORINGI
UMFERÐARLÖGREGLUNNAR
OHIO
Nei, og ég hef heldur ekki spurt
Evu Adams. Þau ldjóta að vera í Ohio.
Leitið í skrifborðsskúffunni yðar.
Richard. L. Reed.
C OLUMBUS-KV ÖLDBLAÐIÐ
Leitin að bimtm sex mannætum
heldur áfram
Columbus, Ohio 15. júh'
Frá fréttastofu blaðanna.
Síðari hluta dagsins í dag tilkynnti
H. L. Twine foringi umferðarlögreglu
ríkisins, að lcitin að hinni horfnu kvik-
myndastjörnu, Rebecca Lane, og hinum
sex afrísku mannætum fari nú aðallega
fram í héraðinu norður af Eagle Rock,
•40
HEIMILISRITIÐ