Heimilisritið - 01.08.1955, Page 59

Heimilisritið - 01.08.1955, Page 59
Framhaldssaga eftir RUTH FLEMING Nýi herrctgctrðs- eigandinn „Það vonarðu auðvitað,“ sagði hún. „En er þér alveg ljóst hvað þú ært að gera? Veiztu ekki, að maður í þinni stöðu hefur ýms- um skyldum að gegna? Þér ber skylda til að kvænast efnaðri stúlku, og svo kastarðu þér í fang fátækrar stelpu, sem ekk- ert á undir sér að neinu leyti. En hún hefur haldið vel á spil- unum. Mig renndi grun í að hún ætlaði sér þetta frá því fyrst hún kom til okkar í London, og . . .“ „Þar skjátlast þér, mamma,“ tók Bruce framm í fyrir henni. „Nei, drengur minn, mér skjátl- ast aldrei í þessum efnum.“ „Ef þú heldur því fram, að Linda sé eitthvert glæfrakvendi, þá skjöplast þér hrapallega! Hún hefur heilsteypta og hreina skapgerð, og hún er sú eina, sem getur gert mig gæfusaman.“ „Ég hef verið vakin og sofin yfir velferð þinni — þótt ég bú- ist kannske ekki við því að það verði þakkað. En ég hef fyrst og fremst lífshamingju þína í huga, þegar ég nú segi þér hreint út þá sannfæringu mína, að þú sért að hlaupa á þig, og ég vildi óska að þér skildist það.“ „Ég vil ekki heyra orði hallað á Lindu,“ svaraði hann festu- lega. „Ég er enginn einfeldning- ur, mamma, og ég þekki Lindu það vel að ég veit að hún hefur mikla mannkosti.“ „Allir ástfangnir karlmenn eru blindir,“ sagði frú Kinlock, „og nú ertu sjálfsagt svo blind- ur að þú ímyndir þér að þú sért fyrsti karlmaðurinn í lífi Lindu. Hefurðu gleymt Maurice Carn- forth?“ „Það hefur aldrei verið neitt ÁGÚST, 1955 57

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.