Heimilisritið - 01.01.1956, Blaðsíða 9

Heimilisritið - 01.01.1956, Blaðsíða 9
hefur tekizt sérstaklega vel með hárið!“ Þegar mestu morgunönnunum var lokið, fóru stúlkurnar að taka af borðunum og þurrka af þeim. Fanny og Hilda hötuðu þá vinnu, en Andy sagði bara: „Þær, sem þykjast of fínar til þess að skúra og skrúbba, geta leitað sér að vinnu hjá öðrum. Hjá mér á allt að vera hreint!“ Sista hafði aldrei haft neitt á móti því að skúra gólfið fyrr en í dag, en áður en fimm mín- útur voru liðnar, skildi hún hvers vegna hinum stúlkunum var það svo mjög á móti skapi. Henni varð það á að rífa lakk- ið af tveimur nöglum, og óskaði sér nú þess, að hún hefði frest- að því að snyrta hendur sínar svona vel. Og um ellefuleytið fóru háhæluðu skórnir að meiða hana. Oftast hafði Sista kunnað vel við sig þegar mest var að gera um hádegið. En í dag var henni allt andstætt. Hún þurfti alltaf að vera að hugsa um neglurnar Qg laga hárið, sem var alltaf að falla ofan í andlitið í hvert skipti sem hún hneygði sig. Og hælarnir voru hreinasta pynd- ing. Þegar einn gestanna bað hana um að fara fram og segja að hann vildi heldur steik en fiskinn, sem hann hafði beðið um, hvæsti hún til hans: „Hald- ið þér að þér getið nokkurn tíma ákveðið hvað þér viljið?“ Orðin voru tæpast hrotin af vörum hennar er hún reyndi að stynja fram afsökunarbeiðni, en Andy hafði heyrt til hennar. Skömmu síðar, þegar mestu annirnar voru búnar, sagði hann: „Við höfum það ekki til siðs að sýna gestunum ókurteisi hérna, Sista. Það er víst eins gott fyrir þig að fá þér sæti og einn kaffibolla.11 KLUKKAN TVÖ hafði hún náð sér aftur. Það er að segja að svo miklu leyti, sem hún gat það í þessari nýju mynd. Stöku gestur leit inn og henni gekk furðanlega vel að nota nokkuð af þeim fyndnu tilsvörum, sem Fanny var alltaf með, enda þótt hún sjálf hefði ekki átt vanda til þess að vera með neitt fjas við gestina. Þegar klukkuna vantaði kort- er í þrjú laumaðist Sista fram í snyrtiherbergið til þess að mála varirnar betur, sverta augabrún- irnar'meira og bursta vel yfir hárið. Klukkan varð þrjú, en ekki kom Ben. Þegar klukkan var orðin korter yfir þrjú fór hún að verða taugaóstyrk. Það var ekki fyrr en hálffjögur, að stóri, JANÚAR, 1956 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.