Heimilisritið - 01.01.1956, Blaðsíða 26
Þýzk
sakamálasaga
Maðurinn á
eftir
Fritz Fluckiger
glugganum
DR. KARL PFLUGER rann-
sóknardómari barði taugaóstyrk-
ur með blýantinum í borðplöt-
una.
, Hvað hef ég ekki sagt yður?
Það er alls ekkert hægt að veiða
upp úr þessum náunga, fulltrúi.
Blátt áfram ekki neitt. Hann
varar sig á hverri einustu gildru,
sen.' við leggjum fyrir hann með
spumingum. Annað hvort er
hann einfeldnin sjálf, eða þá að
hann er sérlega slunginn. Harða
fletið og vatn og brauð ógna
honum ekki. Þó er það honum
ekki hættulaust, að hafa borið
hring myrta mannsins í vestis-
vasanum. Eins og áður, heldur
hann því fram’ að hafa keypt
hringinn af ókunnugum manni.
Er þessi ókunni maður til eða
ekki til? Eigum við að sleppa
þessum Harry Schmied vegna
skorts á sönnunum?“
Haller leynilögreglumaður fitl-
aði tómlega við úrfestina.
.,Við gætum gert það,“ svar-
aði hann, „en við gerum það
ekki, að minnsta kosti ekki fyrst
um sinn. Einmitt í þessari and-
ránni datt mér í hug ráð, sem þó
því aðeins getur heppnazt, að ég
finni manninn, sem ég leita að.“
„Hvaða maður er það?“
„Það er maðurinn, sem Harry
Schmied vildi selja hringinn.“
„Já, en þetta er hreinn og
beinn þvættingur, fulltrúi. Þenn-
an mann finnið þér aldrei. Hald-
ið þér, ef til vill, að Schmied
hafi verið svo heimskur að hætta
á að selja manninum hringinn?11
„Því þá ekki? Það er alls ekki
útilokað. Við verðum að halda
rannsókninni áfram, annars
komumst við aldrei til botns í
málinu. Ég ætla að fara núna.
Verið þér sælir!“
24
HEIMILISRITIÐ