Heimilisritið - 01.01.1956, Blaðsíða 32
Garrido, herforingi konungsins Bassi
Remigio, borgari .......... Bariton
Araquil, sonur hans ......... Tenór
Bamon, liðsforingi .......... Bassi
Bustamente, undirforingi .... Bariton
Anita, stúlka frá Navarra .... Sópran
Staður: Við Bilbao og í Baskahér-
uðunum.
I. ÞÁTTUR
Lítið torg í þorpinu Garrido,
herforingi konungssinna, hefur
árangurslaust reynt að vinna
borg í Baskahéruðunum úr
höndum óvinar síns, Zucraraga,
foringja Carlistahersins. Her-
mennirnir eru að koma úr her-
förinni og Anita, Navarrastúlk-
an, leitar fregna af unnusta sín-
um, Araquil, undirforingja. Her-
mennirnir vita ekkert um hann,
en ekki líður á löngu þar til
'hann emur. Anita ræður sér ekki
fyrir fögnuði yfir endurfundun-
um og hann fagnar engu síður
yfir að vera ominn til baka. Tví-
söngnr, Araquil og Anita: „Hug-
ur minn var hjá þér“. Remigio,
faðir Araquil, kemur að þeim,
þegar þau eru að tjá hvort öðru
ást sína. Honum geðjast ekki að
því, að sonur sinn sé í tygjum
við stúlku frá Navarra. Hann er
af fyrirfólki kominn, en hún ætt-
laus. Elskendurnir biðja hann að
vera sér hliðhollan, en hann er
ósveigjanlegur. Loks segir hann
Anitu kaldhæðnislega, að Ara-
quil skuli fá að eiga hana þeg-
ar hún geti fært í búið tvö þús-
und duros í heimanmund. Hún
eygir enga möguleika á að út-
vega þessa upphæð og örvænt-
ir um ráðahaginn. Þegar farið er
að rökkva kemur Garrido, her-
foringi, með foringjaliði. sínu.
Honum er sagt að foringi liðs-
sveitar þeirar, sem Araquil er í,
hafi fallið, og felur hann þá Ara-
quil stöðu hans og hælir honum
fyrir hreysti og hugprýði. Anita
er skr þess meðvitandi, að hún
og Araquil fái ekki að njótast,
en faðir hans leiðir hann á brott,
hreykinn yfir frama hans. Anita
veruðr áheyrandi að þeirri yfir-
lýsingu Garrido, að hann vilji
verðlauna þann miklu fé, sem
30
HEIMILISRITIÐ