Heimilisritið - 01.01.1956, Page 16

Heimilisritið - 01.01.1956, Page 16
hjónabandsins, en getur búið út af fyrir þig. Og ég þarf ekki að sitja og láta mér leiðast, þegar einhverjir vinir vinir þínir koma að spila bridge. Þá get ég boðið fólki inn til mín. Æ, elsk- an, . . . segðu nú að þér finnist þetta dásamlegt fyrirkomulag!“ Ég jánkaði því. Ekki af því að ég meinti það, heldur vegna þess að armar hennar voru svo mjúkir þegar hún lagði þá um háls minn og nuddaði mjúkum lokkunum við kinn mína. . . . Svo fluttum við inn í húsið. Fyrstu vikumar fóru allar tóm- stundir okkar í að veggfóðra, mála og gera við. Mímí var 1 blá- um samfestingi og flautaði við vinnuna, og skemmti mér með lýsingum á þeirri unaðslegu til- veru, sem beið okkar. Já, einmitt það! Við vorum ekki fyrr búin að koma okkur fyrir, en það spurðist, að Mímí væri orðin villueigandi, og áður en við vissum af, gerðu undar- legustu mannverur innrás á heimili okkar, manngerðir þær, sem hún kann bezt við. Félagar úr blaðamannastétt, listmálara- vinir, fráskildar frúr, sem ekki höfðu þak yfir höfuðið og gras- ekkjumenn, sem voru svo hjálp- arvana, að þeir gátu ekki einu sinni soðið egg sjálfir. Hvað var þá eðlilegra, en að þeir kæmu í heimsókn til Mímí, og legðu undir sig hennar húshluta? EINN þeirra, sem mest fóru í taugarnar á mér, var ungling- ur, sem var kallaður Pontus, og konan hans hafði haft nógu góð- an smekk til þess að skilja við hann og taka saman við annan. Pontus þessi vildi skýra út, hvers vegna konan hafði hlaup- ið frá honum, og í því skyni sat þessi fugl á hverju kvöldi í kjaftabælinu hiá Mímí, og rakti í löngu máli allar heimiliserjur þeirra hjóna, hvað hann hafði sagt, og hvað hún hafði sagt, hvað hann hafði látið hana hafa mikla peninga til heimilisins og hvað hún hafði farið með mlk- ið, og þar fram eftir götunum. Og Mímí hlustaði áfjáð á þessa frásögn, og spanaði hann upp af og til með einhverri athuga- semd eða góðri ráðleggingu, sem byggð var á sálfræðilegum kenningum hennar. „Hvað segir þú um þetta — þú, sem sjálf ert kona?“ þuldi Pontus í sífellu. Mímí gekkst upp við svona smjaður og bauð upp á rauðvín og sat og fjasaði um vandamál hans fram á rauða nótt. Þegar Pontus hunzkaðist svo loksins í burtu, læddist hún — svei mér þá! — inn í okkar sameiginlega 14 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.