Heimilisritið - 01.01.1956, Qupperneq 21

Heimilisritið - 01.01.1956, Qupperneq 21
SAGA UM MIKLA MANNGÆZKU Ráð læknisins Eftir Laurence Kirk AMBERSLEY læknir er heil þjóðsagnahetja, þar sem ég á heima. Sumt fólk segir, að hann sé latur, og það er satt, að þú getur komið að honum, þar sem hann situr rólegur og les skáld- sögu eftir Jane Austin. En í þeim tilfellum er hann sennilega annaðhvort að hvíla sig eftir vitjun til erfiðs sjúk- lings, eða hefur komið of snemma til að taka á móti barni. Honum geðjast ekki að veiku fólki, og viðmót hans gæti oft verið betra, en það er. Honum er líka stundum legið á hálsi fyrir að vera bæði kæru- laus og ókurteis. Kæruleysið er venjulega gríma yfir ákafri hug- areinbeitingu, en ekki alltaf. Það fer raunar eftir því, hvort þú ert fær um að borga reikn- inginn, eðu ei. Ef þú ert það, er hann til með að vera bæði kæru- laus og ókurteis — en hann læknar þig, ef það er á annað borð hægt. Á hinn bóginn, ef þú ert ekki fær um að borga reikninginn og ert ólæknandi, víkur hann ekki frá þér fyrr en yfir lýkur, og hjálpar að líkindum ekkjunni að þér látnum. Atvik, sem fyrir kom á stríðs- árunum, lýsir honum einkar vel. Drungalegan morgun í nóvem- ber sá vinur hans hann klukkan hálfátta akandi hjólbörum, full- um af garðyrkjuverkfærum. „Halló, læknir!“ kallaði vin- urinn í gamni. „Ætlar þú að- grafa einhvern?" Ambersley setti börurnar nið- ur, ólundarlegur á svip. „Nei,“ sagði hann, „ég ætla að reyna að grafa mann upp.“ Vinurinn starði bara og lækn- irinn hélt áfram: „Það er Jói gamli Higgins." „En Jói er ekki dauður, eða hvað? Ég hef heyrt hann væri veikur.“ „Hann hefur verið veikur, mjög veikur. Honum líður bæri- lega núna, en hann liggur bara í öngum sínum, af því ég vil. ekki leyfa honum að fara út og vinna í garðinum." JANÚAR, 1956 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.