Heimilisritið - 01.01.1956, Side 24

Heimilisritið - 01.01.1956, Side 24
Aðalvandamálið næstu tíu dagana var það, hvort setja ætti hana aftur á skrá hættulega veikra sjúklinga. Það hefði sennilega verið gert, ef nokkr- ir ættingjar hefðu verið til að lilkynna það; því henni hrakaði enn. Svo bar það við einn dag, að Ambersley læknir sat þungur á svip við rúmið, virti fyrir sér, hvort þau hefðu enn einu sinni beðið lægri hlut í baráttunni. Það var vissulega ekkert frek- ara, sem læknisfræði fékk að gert, og í þetta sinn var ekki einu sinni garður fyrir hann að vinna 1. Hann leit um tómlegt, sótt- hreinsað herbergið, og augun staðnæmdust við þrjár sölnað- ar rósir í vasa á borðinu við rúmið. Þetta voru raunar upp- gjafarósir frá öðrum sjúklingi, en góðhjörtuð 'hjúkrunarkona hafði komið með þær þarna inn til að bæta ofurlítið upp á tóm- leikann. En þær gáfu Ambers- ley hugmyndina. Hann sló allt í einu á bæði hnén á sér og stóð upp. Þetta var þrem dögum áður en slík ös varð hjá blómasölun- um. Þá var Díana jafnvel hætt að opna augun, þegar komið var inn, og hún hlustaði ekki á það, sem sagt var við hana heldur. En það virtist óvenjulega gest- kvæmt hjá henni þennan síð- dag, og að lokum opnaði hún augun, og hélt þeim galopnum. Það var haugur af blómum allt umhverfis rúmið: bleikum rósum, rauðum rósum, dalíum, anemónum, krýsantemum. Nú opnaði hún munninn næstum eins mikið og augun. Ég hlýt að vera dáin, hugsaði hún: margar stúlkur fá aldrei blóm, fyrr en þær eru dánar! En svo tók hún eftir ferskjum á borðinu og bar eina upp að vörunum til að smakka á. . . . Sögulokin eru frá Ambersley lækni sjálfum. Ég hafði snúizt um öklann, og hann leit stöku sinnum inn til að líta eftir mér. „Er hún sönn?“ spurði ég, „sagan um stúlkuna og blómin í Cottage spítalanum?“ „O, já, hún er sönn!“ svaraði hann. „Það er ekkert að ná sér af veikindum, skilurðu. En að horfast í augu við lífið aftur, þegar öll sund eru lokuð, það er þrautin þyngri. Ég ásaka ekki aumingja stúlkuna. Hún hafði hætt öllu á tæpasta vað og stóð nú uppi allslaus og einmana.11 „En mig langar að vita ná- kvæmlega, hvað þú gerðir.“ „Setti auglýsingu í blað, vit- anlega. Það kostaði minna en að að hrúga í hana aureomycin 22 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.