Heimilisritið - 01.01.1956, Side 34

Heimilisritið - 01.01.1956, Side 34
Hann tóJ^ hana í faÓm sinn og þrýsti henni fast að ser. ÁSTIN SIGRAR Ejtir RICHARD LUNDHOLM SNEMMA sunnudagsmorguns kom bóndinn út í hlöðu þar sem Hinrik var að sópa gólfið, kátur og flautandi lagstúf. Loftið var mettað af ryki, en kústurinn þaut yfir steypt gólfið. „Ég veit að þú áttir frí í dag," sagði bóndinn afsakandi, „en gætirðu ekki samt spennt létti- vagninn fyrir þann brúna og sótt nýju kaupakonuna okkar, sem kemur með tíulestinni. Hún kemur vafalaust ekki án farangurs, og það er ekki hægt að láta hana ganga alla leiðina hingað.” Kaupamaðurinn varð súr á svipinn, en hann gat ekki neitað húsbónda sínum um þennan gr'eiða. Hann hélt áfram að sópa gólfið án þess að segja orð. Þeir voru tveir, kaupamennim- ir á bænum, og Hinrik var tveim- ur árum yngri en Páll kaupamað- ur, sem var 22 ára gamall. Þeir höfðu báðir verið kaupamenn í Gullhaga í hálft annað ár, og fram að þesu höfðu þeir verið vinir. Páll var dökkleitur, sterk- legur unglingur með brún augu og liðað hár. Hinrik var hærri og grennri, hann var með blá augu og ljósleita húð, en sólbrennt og fallegt andlit. Hár hans var eld- rautt og það var vonlaust verk 32 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.