Heimilisritið - 01.01.1956, Side 50
Mjög hætt er við ctð þau börn
verði hræðslugjöm og taugabil-
uð, sem alltaf heyra: ,,passaðu
þig, farðu varlega". Börn svona
mæðra þora ekki að líta út fyrir
hússins dyr nema í peysu og með
trefil, þora ekki að læra sund af
dmkknunarhræðslu og svona má
lengi telja. Börnin eiga að læra að
taka vandamálum lífsins, en það
er óþarfi að venja þau á að
hugsa stöðugt um ókomin vanda-
mál.
10. Reynið að gefa baminu
einungis góð fordæmi.
Böm eru miklar hermikrákur.
Sé faðirinn vondur við konu sína,
verður sonurinn að líkindum
vondur við sína. Gott fordæmi er
bezti uppalandinn.
11. Reynið að láta bamið
finna, hvemig þér ætlist til að það
hagi sér, en forðist refsingar.
Börn brjóta oftar af sér óvilj-
andi en viljandi. Þess vegna
finnst þeim oft refsingar ranglát-
ar. Sé refsing samt óumflýjanleg,
refsið þá ekki barninu líkamlega
fyrr en í lengstu lög. Betra er að
leggja einhverja kvöð á barnið
og sjá um að það framkvæmi
hana.
Það er eftirtektarvert að frá
þeim heimilum, þar sem líkam-
legar refsingar tíðkast ekki, koma
sjaldnar vandræðaböm en frá
þeim heimilum, þar sem barsmíð
er daglegt brauð.
Þetta kemur vel heim við þá
skoðun glæpafræðinga, að þung-
ar refsingar komi ekki í veg fyrir
glæpi. Bam, sem er oft lamið,
herðist upp í þrjózku. Það finnur
að foreldrarnir ráða ekki við það
og hættir að bera virðingu fyrir
þeim.
12. Hafið ætíð stjóm á tilfinn-
ingum yðctr í viðurvist barnsins,
jafnvel þótt það sé ekki vegna
bamsins, sem æsingin stafar.
Margir læknar halda því fram,
að margir hegðunargallar svo og
sumir sjúkdómar, t. d. astma,
exem, meltingarkvillar og ,ýmsir
hjartasjúkdómar, eigi rót sína að
rekja til þess, að barnið hefur orð-
ið vitni að árekstrum foreldranna.
Slík reynsla getur haft varanleg
áhrif á bamið, gert það hrætt eða
herskátt úr hófi fram.
En ekki má gleyma að áköf ást-
aratlot hjóna geta haft svipuð
áhrif á ungbamið, ef það er vitni
að þeim, því að barnið greinir
ekki á milli áfloga og ástaratlota,
ef þau eru áköf.
Þetta eru nú reglumar. Þær
virðast einfaldar og eru það líka.
En samt er stundum erfitt að fylgja
þeim, enda ekki nema mannlegt.
Reynið samt að fylgja þeim og
þér munuð fljótt sjá árangurinn.
48
HEIMILISRITIÐ