Heimilisritið - 01.08.1956, Side 8

Heimilisritið - 01.08.1956, Side 8
venjulega sjúkrahúslykt, þá er hájfrokkinn gangur í sjúkrahúsi miklu rómantískari en allar hita- beltiseyjar með pálmum og íunglsskini." ,,Af hverju segir þú það?" spurði ég hissa. Vegna þess að það var á :slíkum gangi, sem ég bað konu rninnar," svaraði hann brosandi. ,,Ég var rétt búinn að láta hana fá húðflipa, sem nota átti til ágræðingar, og hún átti að setja í kæliskáp. Fyrir mig var þetta kvöld heillandi rómantík, hvað sem öðrum kann að finnast um það." Vinur minn er ekki eini lækn- irinn, sem hefur fundið ást og ró- mantík í hálfrokkriu sjúkrahúsi að næturlagi. Yfirleitt er ekki mik- ið að gera hjá kandidat, sem hef- ur næturvörzlu, svo að hann hef- ur nægan tíma til þess að tala við næturhjúkrunarkonuna um ýmislegt annað en sjúklingana. Á ÞESSUM tíma sólarhrings- insins eru sjúklingarnir að vísu rólegir, en það er ekki alltaf sem þeir sofa. Oft liggja þeir og leggja við hlustirnar, og það eru einkum kvensjúklingar, sem hafa mikinn hug á þeirri rómantík, sem bindur saman lækni og hjúkrunarkonu á hinum þöglu og hljóðu göng- um sjúkrahússins. Karlmenn hafa líka áhuga á þessu, en hjá þeim blandast öfundin saman við áhugann á að hlera. Ég man eftir einu tilfelli þegar ég var ungur kandidat. Við höfð- um einn sjúkling með lærbrot. 1 daglega lífinu var hann milli- göngumaður um veðmálastarf- semi á skeiðvöllunum, og hann trúði mér fyrir því, að áhugi hans fyrir veðmálum hefði ekki dvínað á meðan hann lá. Hann tók upp veðmál við fjöldann allan af hin- um sjúklingunum og veðjað var um það, hvort hjúkrunarkonan fröken A myndi giftast dr. B eða dr. C. Hún gifti sig að vísu skömmu seinna, en alls ekki lækni. Hún giftist þessum um- rædda sjúklingi og það var ekk- ert smáræði sem hann græddi á þessum veðmálum. Það er ekki víst, að hjúkrunar- konur vilji viðurkenna það, en flestar þeirra liía í þeirri von, að þær giftist lækni. Því er það ekki sjaldgæft, að mikillar afbrýðis- semi gæti þeirra á milli. Það gerðist eitt sinn þegar ég var kandidat, að ég bauð einni hjúkrunarkonunni út eftir stofu- gang um kvöldið. Hún hafði tek- ið boðinu, en skömmu seinna áttí ég leið framhjá eldhúsi deildar- innar og þá heyrði ég þetta skemmtilega samtal: 6 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.