Heimilisritið - 01.08.1956, Qupperneq 24

Heimilisritið - 01.08.1956, Qupperneq 24
skapur fram eftir nóttu. Dans- meyjar frá Kúba, brúnar baunir og kalt öl ..." „Takk, ég held líka, að ég taki kvöldverðinn á gistihúsinu fram- yíir," sagði Beth. Kay brosti og leit á John. „Manuels er uppáhaldsstaðurinn minn. Þar er venjulega hægt að hitta mig fram undir morgun. Jæja, ætlið þér að koma með?” Hún benti á stökkbrettið. „Ekki núna," svaraði hann annars hugar. „Ef til vill dálítið seinna ..." Hann var allan daginn með Beth á ströndinni og hafði mikla ánægju af að vera með henni. Það var eitthvað svo öruggt og róandi ■ við hana. Síðari hluta dagsins fóru þau í langa ökuferð í vagni, sem hann hafði tekið á leigu, og þegar hann hleypti henni út fyrir utan hús frænk- unnar um miðnætti, beygði hann sig niður og kyssti hana. Ilmur- inn, sem barst fyrir vit hans frá hári hennar og húð og snertingin við mjúkar, hlýjar varir hennar, fyllti hann óendanlegri ástúð gagnvart henni, og þegar hann rétti úr sér, fann hann til svima, nærri því eins og þegar hann stóð á háa brettinu og átti að henda sér út í tómið. En þegar hún hafði smogið inn um dyrnar og hann sat einn eftir í vagnin- um, tók hann algerum sinnaskipt- um. Hann var eirðarlaus, án þess að vita hvers vegna. I stað þess að aka heim til gistihússins og gefa sig svefninum, sem hann þarfnaðist svo mjög, á vald, stöðvaði hann vagninn fyrir utan Manuels. Hann stóð kyrr dálitla stund og hlustaði á tælandi tóna hljómsveitarinar úr fjarska. Síðan yppti hann öxlum og gekk inn .. . VIKUNA Á EFTIR Ufði John undarlegu tvílífi. Sjálfum fannst honum hann stundum næstum því vera eins og tvær maneskjur, sem þekktu hvor aðra lítið. Á daginn var hann fullkomlega hamingjusamur með Beth, en þegar hann hafði fylgt henni heim og blíðlega boðið henni góða nótt með kossi, byrjaði æfintýrið. Með Kay fór hann frá einum næturklúúbbnum til ann- ars, þar skiptust á taumlaus sam- kvæmi í vafasömum auðkýfinga- íbúðum, þar sem hann þekkti hvorgi gestgjafa né gesti, og háskalegar ökuferðir í rauðum kappakstursbíl, sem Kay átti. Því meir, sem hún eignaðist hug hans, þeim mun minna fannst honum hann þekkja hana. Hún talaði aldrei um sjálfa sig eða æsku sína og bauð honum aldrei heim til sín. Að sjálfsögðu gat það þó ekki 22 HEIMILISRITIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.