Heimilisritið - 01.08.1956, Qupperneq 26

Heimilisritið - 01.08.1956, Qupperneq 26
syndum við nokkrct kílómetra út! Og í kafi til baka, er það ekki? Svo förum við öll saman inn á einhverja hafnarknæpu og látum tattóvera okkur. Það er einmitt það, sem mér skilst vera vel- heppnað kvöld." Kay hrukkaði ennið. „Mér heyr- ist þér ekki vera sérstaklega upp- lagðar. En hvað segir þú John?" Hún brosti ögrandi til hans. John leit niður í dökkt vatnið. Það var kuldagjóstur og hrollur fór um hann. „Ja . .." Beth hló. „Auðvitað. Slíkt æfin- týri lætur John ekki ganga sér úr greipum, Kay. Hann verður að reyna allt; hann er fæddur ofur- hugi. Þér ættuð t. d. að sjá hann ryðjast gegnum veitingasal mett- aðan af reyk. Hetja allra tímal" John beit á vörina. Síðan sagði hann rólega; „Eg vil gjama synda smá sprett með þér, Kay. Kuldahrollurinn -— hann á nú við okkur." Kay kinkaði kolli með dular- fullt bros á vör, en Beth fölnaði upp. „Þér er ekki alvara, John. Við erum langt úti á hafi, það er nið- dimm nótt og hundakuldi og þú hefur sjálfur sagt mér, að þú sért enginn æfður sundmaður." „Þvaður," sagði hann stuttur í spuna. „Ég kem strax, Kay." Hann hryllti við köldu vatninu, svo hann náði varla andanum, en hann reyndi þó að komast upp að hliðinni á Kay, sem synti burt frá honum með hraustlegum, létt- um tökum. Hljómlistin og raddir- ar heyrðust úr fjarska og hann gat rétt aðeins rétt grillt í hvíta sundhettu hennar gegnum myrkr- ið. „Hvað er orðið af þér?" hróp- aði hún óþolinmóð. Hann ætlaði að svara, „við skulum snúa við", en tennurnar glömmðu svo í munninum á hon- um, að hann kom ekki upp orði. Hann átti nóg með að halda sér upp úr vatninu. Honum virtist ástandið stöðugt óraunverulegra, eins og vondur draumur, en hann hélt áfram með ofurmætti ör- vinglunarinnar. Að síðustu gat hann ekki meira, og næst þegar hún sneri sér við tihþess að líta eftir honum, stundi hann upp: „Ég held, að ég syndi til baka." „Allt í íagi!" svaraði hún. „Ég kem rétt strax." Þau voru komin lengra burt frá bátnum, en hann hafði ætlað, og þegar hann varð þess var, að vindur og straumur voru skyndi- lega beint í fangið á honum, varð hann gripinn ofsahræðslu. Hon- um fannst hann aleinn í heimin- um og hélt, að sín hinzta stund væri runnin upp. Honum var ís- kalt og limirnar voru þungir af 24 HEIMILISRITIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.