Heimilisritið - 01.08.1956, Side 35
verða svona hrifinn af stúlkunni,
svona fljótt.
Skyndilega. var ég farinn að
gráta, eins og ég hafði gert ótal
sinnum síðan Elinóra dó. „Hvers
vegna?" grét ég út í myrkrið.
„Hvers vegna þurftir þú að yfir-
gefa okkur, Elinóra?" Bara ég
gæti beðist fyrir, hugsaði ég í ör-
væntingu. En það hafði ég aldrei
gert, frá því að ég var barn.
ÉG var fjórtán ára þegar Lena
systir mín dó. Við Lena höfðum
verið samrýmd eins og tvíburar,
þó hún væri ári yngri en ég. For-
eldrar okkar komu frá Bæheimi tii
Ameríku, skömmu eftir að þau
giftust. Pabbi var trésmiður, cg
honum vegnaði hér vel, þó hann
kynni lítið í ensku fyrst í stað.
Mamma lærði aldrei mikið í
ensku, hún var hlédræg kona og
lét sér nægja að hugsa um fjöl-
skyldu sína. Við Lena vorum því
í rauninni fyrstu Ameríkumenn-
imir í fjölskyldunni, við skildum
lítið, þegar pabbi og mamma töl-
uðu um gamla landið, en við vor-
um fljót að tileinka okkur hið
nýja.
Svo fékk Lena lungnabólgu,
þegar hún var þrettán ára.
Mamma reyndi ýmis húsráð, sem
hún kunni frá gamalli tíð. En þau
stoðuðu ekki, óg þegar læknis var
loksins leitað, var það of seint.
Síðustu dagana, sem hún var
veik, þegar ég vissi, að hún
myndi deyja, fór ég á verkstæðið
til pabba til að biðja fyrir Lenu.
Ég lá á grúfu á gólfinu og tár
mín féllu niður í sagið. Ég bað
guð að láta Lenu batna.
Þegar hún dó, missti ég alla
trú á guð.
NÆSTU árin vom baráttutími
fyrir mig. Ég var metnaðargjam
og vildi læra. Pabbi og mamma
urðu hreykin, þegar ég sagði
þeim, að ég hefði ásett mér að
verða efnafræðingur. En meðan
ég var í gagnfræðaskólanum,
slasaðist pabbi alvarlega, er hann
datt niður af þaki á húsi, sem
hann var að byggja. Ég varð að
byrja að vinna til að létta undir
með honum og mömmu. Ég tók
afar nærri mér að hætta við nám-
ið, en ég átti ekki annars kost, og
draumar mínir urðu að engu.
Ég fékk vinnu sem þjónn í bæ-
heimsku veitingahúsi. Ég vann
síðdegis og á kvöldin, og með
því að fara snemma á fætur, gqt
ég sótt skóla nokkra tíma á
morgnana, þó ég gæti ekki tekið
þátt í vísindalegu námi, eins og
efnafræði.
Það var háskóli skammt frá
veitingahúsinu, og þar lét ég inn-
rita mig á nokkur námskeið. Ég
kynntist Elinóru á öðru ári eftir að
ÁGÚST. 1956
33