Heimilisritið - 01.08.1956, Page 38

Heimilisritið - 01.08.1956, Page 38
kenndi Jönu mest, af því nú myndi hún fara á mis við þá umönnun, sem hin höfðu haft sem korna- börn. Hún myndi aldrei muna eft- ir móður sinni. En Sara var sú, sem.þarfnaðist mín mest, þó ég gerði mér það ekki ljóst í fyrstu. Sara var bráð- þroska og hún hafði verið minni börnunum eldri systir, umhyggju- söm og nærgætin. Hún líktist Lenu systur minni í sjón, en að upp- lagi líktist hún Elinóru. Daginn, sem jarðarförin fór fram, gætti frú Gatés barnanna. Næsta kvöld kom Sara, þegar ég var að rugga Jönu í svefn. „Kem- ur mamma aldrei aftur?'' „Nei, Sara?" sagði ég. Hún gekk burt. Klukkutíma seinna reyndi ég að finna hana. En ég sá hana hvergi. Þrem klukkutímum síðar hringdi vin- kona Elinóru, sem bjó tvær mílur í burtu og sagði mér, að Sara sæti á dyraþrepinu hjá henni og reri fram og aftur, og vildi ekki tala við neinn. „Ég held hún sofni bráðum," sagði konan. „Ég skal gefa henni að borða, þegar hún vaknar, og koma henni heim, ef þér viljið." Ég þakkaði konunni innilega. Ég var að baða Jönu og gat ekki farið út. Þegar konan kom með Söru um kvöldið, neitaði hún að fara út úr bílnum. „Ég vil ekki fara inn," sagði hún. Þegar við lögðum að henni, hristi hún höfuðið þrákelknislega. „Ég vil aldrei framar fara inn í þetta hús." Þá skildi ég. 1 fimm ár — alla sína stuttu ævi — hafði Sara ver- ið í návist móður sinnar í þessu húsi. Hún gat ekki þolað húsið, úr því móðir hennar yrði þar aldrei framar. Ef til vill þoldi hún ekki heldur að vera hjá mér, því þeg- ar hún þarfnaðist ástríkis og um- hyggju móður sinnar, hafði ég einungis látið henni í té hugg- unarlausar staðreyndir. Ég fór inn í bílinn og settist hjá Söru. Ég lagði handlegginn utan um hana, en hún sat stíf og þög- ui. Gamlar hugsanir rifjuðust upp. „Allur máttur minn verður að koma frá mér sjálfum." Hugsaði Sara einnig þannig núna? Ég sat í bílnum hjá fölu bam- inu og byrjaði að gráta: „Sara, pabbi þinn þarfnast þín. Tvíbur- arnir þarfnast þín, og Jana. Við erum svo einmana síðan mamma fór, að við getum ekki án þín ver- ið." Ég talaði við hana, eins og ég hefði talað við Elinóru sjálfa. Sara kastaði sér í fangið á mér og grét. „Af hverju kemur mamma ekki 36 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.