Heimilisritið - 01.08.1956, Page 42

Heimilisritið - 01.08.1956, Page 42
trúnaðartrausts, sem veitir manni styrk til að gera það eitt, sem honum finnst rétt. En ég var auð- vitað ekki laus við efasemdir. Goldy sagði mér, smóm saman nóg um fortíð sína — hún hafði verið trúlofuð fjórum sinnum — svo ég hafði stundum óhyggjur út af því, hvað biði mín og bam- anna. Ég vissi, að móðirin er líf- akkeri heimilisins, og ég vissi að líf okkar allra myndi snúast um hana sem miðpunkt, eftir að ég hefði kvænzt henni. Við höfð- um farið okkur of geyst þegar frá byrjun. Ég get ekkert gert að því nú, sagði ég við sjálfan mig. Ég gat varla sagt Söru og tvíbúrun- um, að Goldy ætlaði ekki að verða mamma þeirra, eftir allt saman. Og þegar ég hugsaði um það, fann ég, að ég gæti aldrei fengið mig til að hafna því öllu, sem Goldy var mér. Ég verð að fá hana, hugsaði ég. Ég get ekki tekið aftur upp hið einmanalega líf, sem ég hafði lifað, áður en hún kom. Ég get ekki verið án þess unaðar, sem við veittum hvort öðru. Svo þegar vinnufélagar mínir gerðu að gamni sínu og stríddu mér á því, að þeir hefðu séð ákveðinn, gráan bíl við húsið mitt um nóttina, brosti ég bara og hratt frá mér umhugsuninni um kulda, sem ég hafði tekið eftir í fari sumra vinstúlkna Elinóru upp á síðkastiði. Crandall hjónin áttu tvö böm, stúlku í gagnfræðaskóla og son í hernum. Við ákváðum að eyða orlofi við vatn í Colorado, þangað sem við höfðum farið á hverju sumri í nokkur ár. ,,Goldy getur sofið í okkar bústað hjá Börbu," sagði Lolla. Við komum að vatninu um kl. 9 um kvöldið og það var kalt í fjalllendinu. En Crandallhjónin höfðu kveikt upp í bústað okkar, svo þar yrði heitt. Við tókum upp farangurinn og komum börnunum í háttinn. Síðan fór Goldy yfir í Crandallbústaðinn til að sofa, Ég skreið í rúmið, skjálfandi af kulda. Mér fannst ég varla sofn- aður, þegar ég fann grannan lík- ama Goldy skjálfandi við hlið mér. ,,Ég þoldi það blátt áfram ekki, Davíð," sagði hún. ,,Mér var kalt. Vermdu mig, elskan. Það er svo kalt hérna uppi í fjöllunum." Tennurnar glömruðu í henni. Ég þrýsti henni að mér, en ég fann til blygðunar. Ég lét þó ekki áhyggjur mínar í ljós nema að litlu leyti, er ég sagði: ,,Goldy, hvað heldurðu að Lolla segi?" Goldy hjúfraði sig að mér og nartaði í eyrað á mér. ,,Þau voru öll sofandi. Þau vita aldrei, hve- nær ég fór. Þau halda bara, að ég hafi vaknað snemma og farið 40 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.