Heimilisritið - 01.08.1956, Page 46

Heimilisritið - 01.08.1956, Page 46
hafði þótt vænt um Elinóru. Hún vissi, að ég blygðaðist mín oft fyr- ir hana. Eg sá hana oft stara á stóra mynd af Elinóru, sem stóð á fataskáp Söru litlu, og stundum voru tár í augum hennar. „Ég hef reynt eins og ég get," sagði hún. „Ég er ekki lík Elinóru. Ég vildi ég væri það." „Af hverju skyldir þú vera það?" sagði ég. En ég vissi, hvað hún átti við. Og svo hvarf smátt og smátt allt stolt hennar af hjónabandinu og móðurhlutverkinu, og hún varð þögul og döpur. Um það leyti, er Goldy hætti að hafa drenginn á brjósti, kom Herb Crandall aftur heim í orlof. Allt í einu varð Goldy glöð og kát á ný og gimileg, eins og þeg- ar ég kynntist henni fyrst. I fyrstu tók ég ekkert mark á því, þó Herb væri sífellt í húsinu, þegar ég kom heim frá vinnu. Mér hafði alltaf geðjazt vel að Herb. Hann hafði verið góður vinur okkar Elinóru. Hann var hæglátur og námfús piltur, sem tók bækur fram yfir stefnumót. Dag einn í apríl kom ég heim og fann Goldy dansandi og syngj- andi í eldhúsinu að taka til k.völd- verðinn. Dagurin'n hafði verið óvenjulega heitur, og hún var klædd bikinibaðfötum, sem hún hafði keypt í Flórída í brúðarför- inni. Húðin á henni var ljósrauð, og ég hugsaði með mér, að ég yrði að reisa skjólgarð, ef hún ætlaði í sólbað í slíkum klæðum. Sara kom inn í eldhúsið. Hún leit á Goldy og hló. „Þú ert ekki mikið klædd, mamma," flissaði hún. „Var það það, sem Herb var að tala um úti í garði — að þú værir ekki í miklu?" „Litli lygalaupurinn- þinn!" Snögg eins og elding sló Goldy hana á vangann. Það var hart og sárt högg. Ég sá tár í augum Söru, er hún hljóp fram hjá mér inn í stofuna. „Hún laug um Herb! Stelpu- skömmin! Hvar fær barn á henn- ar aldri slíkar grillur í hausinn?" „Frá þeim fullorðnu," sagði ég og brýndi röddina. „Svo Herb var með þér í sólbaði!" Ég mundi nú eftir skrítnum vandræðasvip á sakleysislegu andliti Herbs, þeg- ar ég hafði komið heim upp á síð- kastið, og hann hafði verið í hús- inu hjá Goldy. „Hann er bara krakki," hrópaði ég. „Þarftu endi- lega að læsa þínum skítugu klóm í prúðan og saklausan ungling eins og Herb? Geturðu ekki látið þér nægja menn af þinni eigin tegund?" Aður en ég vissi af, hafði ég slegið hana, svo hún datt inn um dyrnar á búrinu bak við eldhúsið. „Þú slóst dóttur mína," hrópaði 44 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.