Heimilisritið - 01.08.1956, Qupperneq 47

Heimilisritið - 01.08.1956, Qupperneq 47
ég. „Snertu hctna ekki framar! Það skal enginn berja mín böm." Hún lá snöktandi á gólfinu, og ég fór út og skellti hurðinni á eftir mér. Ég var reiðari en ég hafði nokkum tíma áður verið, og það, sem verra var, ég skammaðist mín. Hvernig í ósköpunum hafði ég farið að því að láta glepjast af svona lauslátum kvenmanni? Ég hafði fengið nægar aðvaranir, áður en ég kvæntist henni. Nú sat ég fastur. Ég þarfnaðist hennar. Bömin þörfnuðust hennar. Og hún þarfnaðist okkar. Ég gekk þang- að til mér rann reiðin, en skömm- in varð eftir. Sara, hugsaði ég, láttu þetta ekki hafa áhrif á þig. Taktu þér móður þína til fyrir- myndar, þegar þú vex upp. gleymdu því, sem þú sérð í fari nýju mömmunnar, sem pabbi þinn kom með. En svo kom kvöld og ég fór heim. Þegar við vorum háttuð, þrýsti Goldy votum vanganum að mér. „Fyrirgefðu mér, Davíð. Ég vil vera góð eiginkona. Ég vil það sannarlega. En ég hef aldrei verið — bundin — fyrr. Það er erfitt að venjast því. Elskaðu mig, Davíð. Ef þú elskar mig, skal ég gera allt, sem þú vilt. Ég skal verða góð kona. Elskaðu mig." Hún hjúfraði sér upp að mér, og allar tilfinningar frá deginum brutust fram í ákafri ástríðu. Ég tók hana og elskaði hana, þar til hún var búin að fá nóg og tilbúin að falla í væran svefn, eins og ætíð eftir atlot okkar. Hún var aðeins tuttugu og fjögra ára, og hún annaðist prýði- lega um fimm ung böm, og sá vel um heimilið. Einhvemtíma verður hún fullorðin, sagði ég við sjálfan mig. Ég vonaði innilega, að það reyndist satt. Svo liðu mánuðir og kom fram í júní, og allt í einu fór ég að sjá sígarettustubba án varalits í stóra öskubakkanum hjá stólnum mín- um. Og Goldy var ljómandi af kæti þessa daga, svaf vært og leyfði mér að sofa. Ég minntist á sígarettuna, og Goldy varð vandræðaleg. Hún fölnaði, þreif öskubakkann og hljóp með hann til að hella úr honum. Þá áttaði ég mig á, að Sara og tvíburamir vom allan daginn á leikvellinum og við sundlaugina, svo aðeins tvö ung- börn vom heima. Ég ætti að spyrja Lollu Crandall, hver komi hingað síðdegis, hugsaði ég. En ég var ekki enn lagstur svo lágt að geta gert það. Ekki ennþá. Og dagamir liðu, og ég fann ekki framar neina undarlega sígarettu- stubba, en í þess stað fann ég tóma öskubakka, þegar ég kom heim. Svo einn dag í júlí kom ég heim ÁGÚST. 1956 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.