Heimilisritið - 01.08.1956, Side 62
taka vel eftir. Mér skilst, að dóttir
ýðar hafi nýlega legið hér í
sjúkrahúsinu og gengið undir
uppskurð. Það er ekki svo lítið,
sem hægt er að fræðast um sjúkl-
ing í sjúkrahúsi. Ég hef hugsað
mólið, og komizt að þeirri niður-
stöðu, að það er ekki útilokað,
að einhver hafi fengið þá vit-
neskju, sem hægt var að nota
gegn dóttur yðar, og hótað að
leggja þá vitneskju fyrir almenn-
ing, nema því aðeins að þér gæf-
uð sjúkrahúsinu 250 þúsund doll-
ara. Er þetta ekki það, sem þér
áttuð við með orðinu fjárkúgun og
er þetta ekki ástæðan til þess, að
dr. Knudsen átti að sjá til þess
að gjöfin yrði afþökkuð og þér
fengjuð peningana yðar aftur?"
Hún starði agndofa á hann á
meðan hann talaði og yfirbragð
hennar breyttist á meðan og and-
lit hennar varð öskugrátt. „Það
er ekki satt. Þetta er hlægilegt. Ég
hef ekki gefið sjúkrahúsinu neina
peninga ennþá. Hvemig var þá
hægt að skila mér einhverjum
peningum?"
Hún stóð upp óstyrk og sneri
sér enn að manni sínum. „George,
segðu honum að þetta sé lygi.
Segðu honum ... ég vil ekki
svara fleiri móðgandi spurning-
um. Ég fékk taugaáfall þegar ég
heyrði um morðið ... ég er ekki
eins og ég á að mér að vera ...
ég held að það sé að líða yfir
mig."
Röddin brast og hún féll stynj-
andi á gólfið.
Forstjórinn mátti sig ekki hræra,
en Jim brá skjótt við og tók Caro-
line upp og lagði hana í legu-
bekk.
„Komdu strax með vatn, Rona!"
Hún flýtti sér eftir vatninu.
Það leit út fyrir, að dr. Brode-
rick hefði misst alla stjórn á sér
við að sjá jafn viljasterka konu
og eiginkonu sína falla skyndi-
lega saman á þennan hátt. Hann
stóð eins og negldur á gólfinu
og starði á Jim, sem bar vatns-
glas að vörum konunnar og
Rona sendi einkaritarann eftir dr.
Ellsworth, sem var fjölskyldu-
læknir þeirra hjóna.
Rona var alls ekki viss um það,
að þetta yfirlið væri annað en
leikaraskapur. Var það ekki trú-
legast, að frú Broderick hefði not-
að það til þess að losna við fleiri
óþægilegar spurningar.
Dr. Ellsworth kom mjög fljótt.
Honum var sagt, hvað hafði gerzt
og tók hann þegar að skoða kon-
una, sem lá enn í yfirliði.
„Þetta er ekki alvarlegt, aðeins
venjulegt yfirlið. En þetta hefur
allt verið mikið áfall fyrir hana.
Ég held að það yrði bezt að koma
henni í rúmið hér í sjúkrahúsinu
um stund."
60
HEIMILISRITIÐ