Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 6
ið sér úti um karlmann til að
vernda þaer og sjá fyrir þörfum
þeirra.
Það leið rúmt ár þangað til
Simone ákvað að kaupa sér dýr-
indis loðfeld, sem hún átti reynd-
ar ekki eyri fyrir. ,,Við skulum
tala við stjúpu þína,“ sagði Si-
mone við vinkonu sína. ,,Kann-
ske lánar hún okkur peninga. Ef
hún er með einhver þráa, ættum
við ekki að vera í vandraeðum að
taka þá af henni.“ Louise þorði
ekki að malda í móinn og féllst
á að heimsækja gömlu konuna.
En þá fór ekki alt eftir áætlun.
Gömlu frú Level grunaði strax,
hvað var á seyði. Það varð til
þess að Simone og Louise börðu
hana til óbóta, en gamla konan
var samt nógu hörð af sér til þess
að komast út í glugga og kalla
á hjálp. Simone óttaðist að lenda
í klóm lögreglunnar og flýtti sér
út um bakdyrnar, en lét vinkonu
sína um að bjarga sér sjálfri. —
Louise tókst að komast út úr hús-
inu, en gamla konan gat sagt
lögreglunni frá henni og Louise
var handtekin nokkrum dögum
eftir árásina.
Simone flýti sér þegar í stað
til Parísar og gleymdi vinkonu
sinni, þar til hún las dóminn yfir
henni. Enda þótt hún hefði lit-
að hár sitt, breyttist lunderni
hennar ekki vitund, og það leið
ekki á löngu þar til hún var orð-
in fræg meðal glæpalýðsins í
París. Svo liðu nokkrar vikur og
Simone gleymdi ótta sínum við
lögregluna og fangelsið, og hélt
uppteknum hætti að tæla fé út úr
ferðamönnum og sveitamönnum.
Hinn 12. júní 1950 handtóku
tveir lögreglumenn laglega stúlku
í ljósum sumarkjól. Það var Si-
mone. Hún reyndi að klóra lög-
regluna og barðist um á hæl og
hnakka, en lögreglumennirnir
stungu henni inn í lögreglubílinn
og fóru með hana á stöðina. Þar
var hún ákærð fyrir að hafa stol-
ið 320 þúsund frönkum frá ríkum
iðjuhöldi, sem hafði eytt nóttinni
hjá henni.
,,Reynið þið að sanna það,“
hvæsti hún er hún var færð í La
Roauette, kvennafangelsið í út-
hverfi Parísar. Rétt einu sinni
var Simone bak við lás og slá og
að þessu sinni leit út fyrir að hún
myndi verða að dúsa þar lengi.
Málið var ósköp einfalt og
ljóst. Sex vikum eftir handtöku
hennar, var málið tekið fyrir
rétt. Simone kom í rétarsalinn
með þeim fasta ásetningi, að
gera sem mest úr kvenlegum ynd-
isþokka sínum og hafði fengið
vinkonur sínar í fangelsinu til
þess að lána sér varalit og and-
litsfarða.
4
HEIMILISRITIÐ