Heimilisritið - 01.02.1958, Page 10
Rússneski meistaraspæjarinn
lék á Ameríkana í níu ár
ÞEGAR handjárnin lokuðust
um úlnliðina á Rudolf Ivanovich
Abel ofursta, var bandaríska
leynilögreglan búin að vinna
mikinn sigur. í níu ár hafði þessi
maður starfað í Bandaríkjunum
og sent mikilvæg leyndarmál um
kjarnorkuvopn og önnur hergögn
til Moskvu. Rudolf Ivanovich
Abel hefur njósnað fyrir Rússa
í þrjátíu ár. Síðustu níu árin hef-
ur hann unnið í Ameríku og ver-
ið ótrúlega slyngur að afla sér
upplýsinga. Hann hefur náð í
mestu leyndarmál Bandaríkja-
stjórnar og sent þau rakleiðis til
yfirboðara sinna í Moskvu. Samt
sem áður hafðist hann ekkert að
þegar hann vissi að heill her-
skari af leynilögreglumönnum úr
FBI voru á eftir honum og biðu
aðeins eftir hentugu augnabliki
til að grípa hann.
Það kann að vera að hann hafi
óttazt gagnrýni yfirboðara sinna
í Kreml meira en fangelsisdóm
í Bandaríkjunum, en svo mikið
Rudolf Ivanovich Abcl
er víst, að Abel gerði enga til-
raun til að flýja. Meðal hinna
mörgu hluta, sem fundust í fór-
um hans 'var miði, ,sem á var
letrað : ,,Keypti mér farseðil með
næsta skipi — Queen Elizabeth,
sem á að fara næsta fimmtudag
klukkan 1.31. í dag gat ég ekki
komið. Þrír menn fylgjast með
ferðum mínum.“ En Abel greip
8
HEIMILISRITIÐ