Heimilisritið - 01.02.1958, Qupperneq 12
Mark. Aðrir aðstoðarmenn voru
Vitali G. Pavlov, fyrrum starfs-
maður við rússneska sendiráðið
í Ottawa og Mikhail Svirin, fyrr-
um starfsmaður við Sameinuðu
þjóðirnar.
I níu ár voru þessir menn í
hættulegasta njósnahring sem
starfað hefur í Ameríku. Þeir
ferðuðust um og urðu sér úti um
mikilvæg herðnaðarleyndarmál,
sem þeir skiptust síðan á þegar
þeir hittust af ,,tilviljun“ á járn-
brautarstöðvum eða í snyrtiklef-
um kvikmyndahúsa.
Reino Hayhanen var nánasti
samstarfsmaður Abels. Hann fór
fyrir nokkru frá Bandaríkjunum
og skaut upp kollinum í París.
Þar fór hann í ameríska sendi-
ráðið og bauð að láta Vesturveld-
in hafa í sínar hendur, þá vit-
neskju, sem hann hafði um njósn-
ir Rússa. Hayhanen var búinn
að vera njósnari í Ameríku í
fimm ár og síðasta skipunin til
hans frá Moskvu, var að afhenda
eiginkonu eins atómnjósnarans,
sem sat í fangelsi, fimm þúsund
dollara. Þegar Hayhanen kom að
húsi konunnar, sá hann að lög-
reglumenn voru þar á verði og þá
varð hann hræddur. Hann ákvað
að flýja land og fór þá til Frakk-
lands, en hirti fimm þúsund doll-
arana. Hayhanen, sem er 37 ára
að aldri, situr nú í fangelsi. *
Margur er lcviks voðinn
Maður stóð á götu í enskri borg, þegar sporvagn ók framhjá.
í sama bili datt hann, hafði fengið skot í lærið. Skotið kom frá
sporvagninum — hann hafði ekið á skothylki, sem lá á teininum
og sprengt það með þunga sínum.
Veiðimaður særðist af skoti, sem lax hleypti af. Hann var í
bát og lét 'laxinn skella niður í bátinn, en þar Iá byssa, og fiskur-
inn kom við gikkinn á henni svo skotið hljóp úr.
Maður stóð og virti fyrir sér beinagrind af mannætuhákarli.
Hann stakk hendinni inn í uppglennt ginið, en eitthvað kom kjálk-
unum til að skella saman. Þegar búið var að losa höndina úr
hákarlskjaftinum, varð maðurinn að fara á slysavarðstofuna og láta
sauma saman sárin.
10
HEIMILISRITIÐ