Heimilisritið - 01.02.1958, Page 16
Mary grípur til sinna ráða
Smásaga efir MARY KJELGAARD
☆
,,NEI, nú er sannarlega kom-
inn tími til að binda endi á þetta“
hugsaði Mary með sér einn laug-
ardagsmorgun, þegar þessu hafði
farið fram í heila viku. — ,,Nú
verður Charlotta Grant að læra
þá list, að láta Bob Conrad af-
skiptalausan með öllu. Það er
ég, sem hef einkaleyfi á honum,
en hvorki hún né nokkur önnur
kvensnift.“
Síminn hringdi rétt þegar Mary
var að setjast að morgunverðar-
borðinu.
„Halló." sagði hún og reyndi
að tala rólega.
,,Halló,“ sagði Bob á hinum
enda línunnar. — ,,Verður þú
með okkur í dag?“
,,Auðvitað,“ svaraði hjarta
hennar með ákafa og ,,Ja . . .“
svaraði rödd hennar, kuldalega
og dræmt.
,,Ég sæki þig þá eftir svona
klukkustund. Við ætlum að
skreppa út í sumarbústað þeirra
Tracy-hjónanna. Heljar mikið
samkvæmi, vertu alveg viss. Nóg
að drekka og alt það. . . .“
,,Allt það,“ hugsaði Mary með
sér — ,,þýðir fyrst og fremst
Charlotta."
,,En spennandi," sagði hún og
reyndi að tala glaðlega. —,,Mað-
ur fer bara strax að hlakka til.
Ég skal reyna að verða tilbúin
eftir klukkustund eða svo.“
Móðir hennar brosti með eftir-
væntingarfullum svip: — ,,Jæja,
á nú að fara eitthvað út og
skemmta sér ?“ spurði hún.
,,Það er eftir því hvernig á
það er litið, svaraði Mary. —
,,Við ætlum að skreppa út í
sumarskála Tracy-fjölskyldunn-
ar, eins og venjulega."
,,Eru það ekki þau hjón, sem
hafa þennan merkilega sumar-
gest, þessa stúlku, sem kann að
dáleiða?" spurði frú Reese.
,,Hún getur bara dáleitt karl-
menn," sagði Mary. — ,,Og
þessa stundina er það einungis
minn útvaldi, sem allur hennar
14
HEIMILISRITIÐ