Heimilisritið - 01.02.1958, Page 22
Konungurinn, sem var kona
★ ★ ★
KRISTÍN Svíadrottning var
mest umtalaða kona síns tíma.
Sérvizkulegt framferði hennar og
klæðnaður var umræðuefni allr-
ar Evrópu.
Þegar hún fæddist, var hún
kafloðin frá hvirfli til ilja og grát-
ur hennar var svo dimmraddað-
ur, að þjónarnir flýttu sér til kon-
ungsins og tilkynntu honum, að
hinn langþráði ríkiserfingi væri
fæddur.
Þegar mistökin komu í ljós,
þorði enginn að segja konungi
frá því, þar til loks systir hans,
Katrín prinsessa tók í sig kjark.
En upp frá því kom Gústaf Adolf
fram við við Kristínu eins og hún
væri drengur.
Móðir hennar, María Elinóra
drottning, hataði þetta ljóta barn
frá því hún leit hana augum, og
svo undarleg slys eltu barnið, að
grunur vaknaði. Eftir að svalir
duttu niður á vögguna og höfðu
næstum sálgað því, tók konung-
ur að sér uppeldi þess.
Hún var uppfrædd af karl-
mönnum einum og var látin lesa
yfir tólf stundir á dag. Þegar hún
óx upp, varð hún orðlögð fyrir
kunnáttu sína á mörgum sviðum.
Þegar konungur féll í orustu, grét
litla prinsessan í þrjá sólarhringa
samfleytt og var næstum búin að
eyðileggja sjónina'.
Seytján ára gömul, árið 1632,
vann hún eið sem \onungm Svía.
Kristín var furðulega þolin og at-
hafnasöm, svo hún gekk alveg
fram af hirðmönnum sínum. Hún
þurfti aldrei nema fjögurra tíma
svefn. Frítíma sínum eyddi hún
á hestbaki, veiðum, í líkamsæf-
ingar og dans framundir morg-
un.
Það var skoðað sem refsing að
borða með henni, því hún drakk
ekki annað en vatn og borðaði
svo lítið, að eftir nokkrar mín-
útur stóð hún upp frá borðum og
hungraðir gestir hennar urðu að
gera slíkt hið sama.
Þegar hinn ungi og fríði,
franski greifi, Gabriel de la Gar-
die, heimsótti sænsku hirðina,
töfraði hann Kristínu með fág-
uðum þokka sínum. Hingað til
20
HEIMILISRITIÐ