Heimilisritið - 01.02.1958, Blaðsíða 33
innflytjandi til Bandaríkjanna.
Arin 1921 og 1922 sat hann inni
í átján mánuði í Sing Sing fyrir
morð á hafnarverkamanni, en
eftir það varð hann varfærnari
og fékk sig sýknaðan af hverri
morðákæru eftir það.
Nokkru eftir að Anastasia losn-
aði úr fangelsinu kynntist hann
nokkrum ungum og efnilegum
bófum eins og A1 Capone, Lucky
Luciano og Frank Costello.
A1 Capone var fyrsti bófinn í
Ameríku, sem hlaut titilinn óvin-
ur almennings númer eitt. Lög-
reglunni tókst aldrei að sanna á
hann neinn glæp, heldur féll
hann á svo ómerkilegum hlut
(fyrir Capone) sem skattsvikum.
Það var tímanna tákn, að af 50
mönnum, sem vitnuðu gegn Ca-
pone í skattsvikamálinu, voru
32 myrtir. Árið 1947 dó Capone
— úr lungnabólgu.
Charles Lucky Luciano var
næstráðandi í bófaflokknum hjá
Capone og var kallaður ,,hættu-
legasti maður í heimi'*. Lögregl-
unni tókst ekki heldur að sanna
á hann glæpi, heldur var hann
dæmdur fyrir að reka vændis-
kvennahús í stórum stíl. Hann
var látinn laus árið 1947 og rek-
inn úr landi til Ítalíu, en þar var
hann fæddur. Var hann einn af
499 glæpamönnum frá ftalíu, sem
Bandaríkjastjórn hefur ekki kært
sig um að hafa í sínu landi. Lu-
ciano er nú sextugur að aldri og
býr í Napoli. Þar má hann ekki
láta sjá sig úti eftir að dimmt er
orðið, má ekki fara í veitinga-
hús, sem hafa vínsöluleyfi, og
má ekki fara lengra frá borginni
en í 20 kílómetra fjarlægð.
Frank Costello, sem nú er 66
ára, hét réttu nafni Francesco
Castiglia, og erfði foringjastöð-
una eftir að A1 Capone féll frá.
Hann hefur verið kallaður for-
sætisráðherra glæpaheimsins,
Veðmálagreifinn og mörgum
öðrum nöfnum. Costello græddi
mikið fé á spilakössum og græddi
ekki minna en þrjár milljónir
dollara á ári fyrir stríð. Stundum
voru litlir stigar við spilakassana
— það var gert til þess að börn-
in gætu losað sig auðveldlega
við sparifé sitt. Nýjasta nafnið á
Costello er ,,Hendurnar“. Það
fékk hann fyrir tveimur árum er
hann kom fyrir rannsóknarnefnd
þingsins, sem Estes Kefauver
veitti formennsku, og neitaði að
láta sjónvarpsstöðvarnar senda út
myndir af andliti sínu. Menn
heyrðu aðeins ráma rödd hans og
sáu titrandi hendur hans í sjón-
varpinu.
Costello var orðinn vanur því
að sýna dómstólunum fyrirlitn-
ingu, og hann lauk heimsókn
sinni hjá rannsóknarnefndinni
HEIMILISRITIÐ
31