Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 38

Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 38
heppni — þar hittumst við aftur ! Og ég hef nægan tíma —“ I þetta sinn flýttu Sara og Jane sér upp að bíldyrunum og sögðu gáskafullar við Clem, að tími væri víst það eina, sem nóg væri af á eyjunni. Þær fóru afturí eins og í fyrra skiptið og enn settist ég við hlið Clem og hann brosti við mér. ,,Hvernig er með söngröddina þína Clem ? spurði Jane. ,,Hún er á sínum stað,“ svar- aði hann. Það virtist vera svo undur sak- laust og meinlaust að syngja sam- an á meðan bíllinn brunaði á- fram. Skuggaleg trén og strönd- in þutu framhjá og tíminn leið jafnvel enn hraðar. Clem sagðist ætla að skjóta okkur heim. Fyrst fór hann með Jane vegna þess að stytzt var heim til hennar og síðan spurði hann Söru, hvar hún byggi, og fór með hana þangað. Og þann- ig vildi það til, að ég var ein eft- ir í bílnum með honum. ,,Þú átt fyrst að beygja til vinstri til að komast heim til mín,“ sagði ég við hann. ,,Eg veit, hvar þú átt heima,“ sagði hann mér til undrunar. ,,Ég tók eftir þér og spurði, hver þú værir, fyrir löngu.“ ,,Er það ?“ spurði ég hissa, en ennþá meira varð mér bilt við kippinn, sem hjarta mitt tók, þegar hann sagði þetta. Allt var breytt, þegar stelpurn- ar voru farnar. Rödd Clems var líka breytt. ,,Ég hef verið að velta dálitlu fyrir mér,“ sagði hann. Á meðan hann talaði beygði hann inn á troðning með greni- tré beggja vegna. Hann ók nokk- urn spöl, minnkaði ljósin og lagði bílnum. ,,Ég hef ekið um vegina á hverju kvöldi síðan síðast til að gá að þér,“ sagði hann skyndi- lega. ÉG kom ekki upp nokkru orði, þegar Clem rétti höndina hægt út og snerti vanga minn. Blóðið þaut fram í kinnar mínar. Hann kyssti mig blíðlega og færði sig síðan frá mér, svo ég hafði gegn engu að berjast, engu að neita. ,,Ég verð að fara heim og þú líka,“ sagði ég óróleg. ,,Ekki ég,“ sagði Clem. ,,Það er enginn heima hjá mér núna. Betsy, getum við ekki hitzt eitt- hvert kvöldið, bara við tvö?“ Ég var fljót til svars. ,,Mig myndi langa til að hitta þig, en þú ert kvæntur Clem.“ ,,Ég er ekki hamingjusamur í hjónabandi, Betsy,“ sagði hann þá. ,,Ég hef hangið í hjónaband- inu vegna þess, að ég á tvö börn. 36 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.