Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 39

Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 39
Alveg eins og ég hef hangið í þessari leiðinda vinnu — þú veizt kannske, að ég hef umsjón með einum sumarbústaðanna.“ Eg kinkaði kolli. ,,En ég get ekki —“ byrjaði ég. „Bíddu við,“ greip hann fram í. ,,Ég ætla ekki að halda þessu áfram að eilífu. Ef systir mín giftist, tekur hún börnin fyrir mig. Konan mín yrði fegin að losna frá hafurtaskinu. Hvað er að því að hitta mig einhvern tíma, Betsy, þegar þannig er í pottinn búið ?“ Rödd hans var lág og áköf, en ég hristi höfuðið. ,,Ég er enn að velta dálitlu fyrir mér,“ sagði hann blíðlega. ,,Við skulum sjá til, hvort þetta er skilnaðarstundin eða ekki —“ Hann umlauk mig í faðmi sér og í þetta sinn sleppti hann mér ekki, þegar hann kyssti mig. ,,Bara í þetta sinn í kveðjuskyni,“ sagði ég við sjálfa mig, þegar hann byrjaði, en hugsanir mín- ar óskírðust, þegar áhrifin frá at- lotum hans læstust um mig. Var- ir mínar opnuðust hægt. Þannig hafði ég aldrei verið kysst fyrr, ég hætti að reyna að ýta hönd- um hans burt . . . ég var í sælu- vímu og allur líkami minn heimt- aði meira. Allt í einu sleit ég mig lausa, skelfingu lostin yfir hvötunum, sem hann hafði vakið með mér. Ég skalf. ,,Þetta er það, sem ég var að velta fyrir mér,“ hvíslaði hann skjálfraddaður. ,,Hvort þú mynd- ir bera sömu tilfinningar til mín og ég til þín.“ ,,En við þekkjumst sama og ekki neitt,“ sagði ég efasöm. ,,Ég býst við, að þannig vilji það stundum til,“ sagði hann. ,,Svo var það um mig.“ ÉG var aftur komin í faðm Clems og fannst það, sem hann hafði verið að segja, réttlæta það, að við værum svo nálægt hvort öðru. Hann var ekki að- eins að sækjast eftir atlotum, það var ég, sem hann sóttist eft- ir. En þótt ég endurgyldi kossa hans, barðist ég gegn mínum eigin hvötum. í þetta sinn losaði ég mig fljótlega úr faðmi hans. ,,Þó við þykjumst geta réttlætt þetta, er það ekki rétt þar sem þú ert kvæntur, Clem.“ ,,Við skulum tala út um það,‘ sagði hann. ,,Hittu mig annað kvöld.“ ,,Nei,“ sagði ég í örvæntingu. ,,Við getum ekki hitzt tvö ein. Fyrst okkur er þannig innan- brjósts, megum við það ekki.“ ,,Ég er orðinn ástfanginn af þér og ég mun halda áfram að vera það,“ sagði hann og var HEIMILISRITIÐ 37

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.