Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 64

Heimilisritið - 01.02.1958, Síða 64
legt, þér eruÖ svei mér umburð- arlynd þykir mér.“ Unga frúin brosti: ,,Nú, Óli þarf ekki á hjólinu að halda og maðurinn yðar sagði að sér leidd- ist að ferðast með strætisvagnin- um um þennan árstíma.“ ,,Maðurinn minn! Hvað kem- ur þetta honum við ?“ Rödd frú Helgu var orðinn ískyggilega skræk. Unga frúin tók hrædd hönd- inni fyrir munn sér. ,,Ó, ég mátti ekki segja yður, að maðurinn yð- ar hefði fengið lánað hjólið hans Óla. Ég veit að þér getið ekki þolað að fá lánað neitt hjá öðr- um. En nú megið þér ekki vera strangar. Þetta eru aðeins smá- munir.“ En frú Helga var þegar á leið- inni heim. „Smámunir,” hvæsti hún á milli samanbitinna tann- anna. ,,Smámunir.“ * Herkænska Gömul, góðhjörtuð kona bauð flækingnum inn í eldhúsið og gaf honum að borða. Mcðan á því stóð, varð hann öðru hvoru að taka sér hlé til að klóra sér ofsalega. „Aumingja maðurinn," sagði gamla konan, „ég held þú sért lús- ugur-“ . , • „Nei, frú mín, langt frá því, en flærnar láta' mig ekki fá stund- legan frið.“ „Jæja, og þú veizt ekki, hvernig þú átt að losna við þær?“ „jú, jú, ég gæti losnað við þær ef ég hefði dálítið af spritti." „Spritti! Hvcrnig í ósköpunum ætti að nota það?“ „Það er afar auðvelt. Ég nudda mig allan upp úr spritti. Svo velti ég mér upp úr sandi. Flærnar verða fullar af sprittinu og fara að kasta grjóti hver í aðra, þangað til allar eru dauðar.“ Eggjastríðið Árið 1866 urðu páskaegg tilefni ófriðar milli Krítar og Tyrklands. Stríðið stóð í meira cn þrjátíu ár. Nokkrir tyrkneskir hermenn brutu fulla körfu af máluðum páskaeggjum, sem kona ein á Krít hélt á. Ut af þessu hófust slagsmál. Slagsmálin gripu um sig og urðu að stríði, sem endaði árið 1898 mcð því að Krít komst undir yfirráð Grikkja. 62 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.