Fréttatíminn - 16.03.2012, Side 10
www.volkswagen.is
Volkswagen Caddy
Caddy er áreiðanlegur, sparneytinn og þægilegur
í allri umgengni. Lipur vinnuþjarkur með frábæra
aksturseiginleika og ríkulegan staðalbúnað.
Hann er fáanlegur með bensín-, dísil- og metan-
vélum frá framleiðanda.
Caddy* kostar aðeins frá
2.990.000 kr.
(kr. 2.382.470 án vsk)*Miðað við Caddy TSI bensín, 86 hestöfl, beinskiptur. Aukahlutir á mynd, álfelgur og þokuljós.
Góður
vinnufélagi
Til afgreiðslu strax
Atvinnubílar
L yfjaþróunarfyrirtækið Genís áformar að setja upp verksmiðju á Siglufirði til fram-leiðslu á afurðum sínum. Um er að ræða
náttúruefni sem unnið er úr rækjuskel, annars
vegar til inntöku og hins vegar til ígræðslu
í beinvef. Jóhannes Gíslason, framkvæmda-
stjóri Genís, segir að enn hafi ekki verið skorið
úr um hvort framleiðslan flokkist sem lyf eða
náttúrulyf en Genís hefur gert tilraunir með
efnið í mörg undanfarin ár.
„Í gangi er klínísk prófun á inntökuefninu í
Mexíkó og enn fremur erum við að taka saman
rannsóknir sem við höfum gert á rottum og
kindum hér heima í sambandi við beinígræðsl-
una. Stefnt er að því að sækja um markaðsleyfi
fyrir beinígræðsluefnið á innan tveggja ára,“
segir Jóhannes en efnið örvar vöxt beinfruma.
Nú vinna þrír vísindamenn að rannsóknun-
um í Reykjavík en gert er ráð fyrir að við fram-
leiðsluna og þegar nær dregur markaðssetn-
ingu muni um tíu manns vinna hjá fyrirtækinu
á Siglufirði. Starfsemin þar verður í húsnæði
við smábátahöfnina en miklar breytingar þarf
að gera á útliti hússins til að laga það að bygg-
ingum í nágrenninu. Fyrirtækið er byrjað að
viða að sér tækjabúnaði en Jóhannes segir
menn stefna að því að ljúka endurbótum á hús-
næðinu á þessu ári.
„Við eigum von á niðurstöðum úr klínísku
prófununum í lok ársins en stefnt er að því að
Mexíkó verði okkar tilraunamarkaður,“ segir
Jóhannes.
Fram kom í viðtali við Jóhannes í Lækna-
blaðinu árið 2009 að kítínhráefni væri einangr-
að úr rækjuskel. Fjölsykran kítín hefur verið til
staðar í lífríkinu frá örófi alda og er eitt helsta
byggingarefni í stoðkerfi skordýra, skeldýra
og finnst einnig í sumum lindýrum. Í þróunar-
sögunni kom það því langt á undan hrygg-
dýrum og síðar spendýrum. Ensím þróaðist
í dýrum sem notuðu kítín í stoðkerfi sitt og
gerði þeim kleift að umbreyta og endurbyggja
vefi og skeljar eftir þörfum.
Eigendur Genís eru Hólshyrna á Siglufirði
og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins. Á aðal-
fundi félagsins nýverið var ákveðið að auka
hlutafé þess um 500 milljónir króna til að fjár-
magna uppbyggingu á framleiðslueiningunni
og til frekari rannsókna.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Lilja og Balti vilja byggja
nýjan arin
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og
eiginkona hans Lilja Pálmadóttir
hafa sótt um að byggja nýjan
arin í einbýlishús þeirra við
Miðstræti í miðbænum. Umsókn þess
eðlis hefur verið lögð fyrir byggingar-
fulltrúa borgarinnar og var tekið fyrir
á fundi í þessari viku. Hjónin vilja þó ekki
bara arin því auk þess sækja þau um að fá
leyfi til að byggja út yfir svalir á 2. hæð
og opna inn í húsið og byggja nýjar yfir
aðalinngangi, setja glugga og útblástur
frá háfi yfir eldavél á austurvegg, færa
eldhús upp á 2. hæð og herbergi niður
á 1. hæð. Afgreiðslu umsóknarinnar
var frestað og vísað til athugasemda á
blaði. -óhþ
Víkingahátíð fær 400 þúsund
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í síð-
ustu viku að styrkja Fjörukrána um fjögur hundruð
þúsund krónur vegna árlegrar Víkingahátíðar
sem haldin verður dagana 14. til 17. júní. Hátíðin
hefur verið haldin á hverju ári frá árinu 1995
og er elsta og stærsta hátíð sinnar tegundar
á Íslandi. Búast má við að hátt í tvö hundruð
víkingar, innlendir sem erlendir, sæki há-
tíðina. Alls samþykkti bæjarráð styrki fyrir
rétt tæpa milljón á fundinum. SAMAN-
hópurinn fékk 150 þúsund kónur til
forvarnarstarfs, Flensborgar-
skólinn fékk 150 þúsund krónur til
styrktar námsferðar nemenda
og Pétur Óskarsson fékk 200
þúsund vegna sjónvarps-
þáttagerðar.
Þingvallamynd hundraðfaldast
Í vetur hafa nemendur barna- og unglinga-
deildar Myndlistaskólans í Reykjavík velt fyrir
sér Þingvallamynd Þórarins B. Þorlákssonar
og unnið verk út frá henni. Á morgun,
laugardaginn 17. mars klukkan 14, verður
opnuð sýning á verkunum í Þjóðmenn-
ingarhúsinu við Hverfisgötu. Sýningin
er liður í samstarfi Myndlistaskólans
í Reykjavík, Þjóðmenningarhússins
og Listasafns Íslands í tilefni
sýningarinnar Þúsund ár í
Þjóðmenningarhúsinu. Valin var mynd Þórarins, Þingvellir frá 1900. Nem-
endur komu í safnið og skoðuðu verkið. Í framhaldinu veltu þeir því fyrir sér
með kennara sínum í Myndlistaskólanum og unnu nýtt verk út frá málverki
Þórarins. Útkoman er yfir hundrað verk af ólíkum toga, teikningar, málverk,
myndasögur, leirskálar, lágmyndir, hreyfimyndir og tréskúlptúrar; verk 148
nemenda á aldrinum 4 – 16 ára. Sýningin stendur til 22. apríl. -jh
Genís Verksmiðja á siGLufirði tiL framLeiðsLu afurða
Stefnt er að
því að sækja
um markaðs-
leyfi fyrir
beinígræðslu-
efnið innan
tveggja ára.
Náttúruefni úr rækju-
skel til ígræðslu í beinvef
Von er á niður-
stöðum úr
klínískum próf-
unum í Mexíkó
í lok ársins en
stefnt er að því
að þar verði til-
raunamarkaður
Genís. Óútkljáð
hvort fram-
leiðslan flokkast
undir lyf eða
náttúrulyf.
Náttúruefnið er unnið úr rækjuskel, annars vegar til
inntöku og hins vegar til ígræðslu í beinvef. Mynd Genís
Bindipróteinin taka við sér
vegna skemmdar eða hrörnunar
Frá árinu 2005 hefur Genís,
undir stjórn Jóhannesar
Gíslasonar, einbeitt sér
að þróun á efninu kítósan
til notkunar við bækl-
unarskurðlækningar með
ígræðslu í beinvef en efnið
hefur verið notað í fæðu-
bótar- og snyrtivöruiðnaði,
að því er fram kom í viðtali
við Jóhannes í Læknablaðinu
árið 2009. Kítínhráefnið sem
Genís hefur unnið með er
einangrað úr rækjuskel en
kítin er eitt helsta bygging-
arefni í stoðkerfi skordýra
og skeldýra.
Í þeim dýrum sem notuðu
kítín í stoðkerfi sitt, sagði
meðal annars í Lækna-
blaðinu, þróuðust ensím sem
gera dýrunum kleift að um-
breyta og endurbyggja vefi
sína og skeljar eftir þörfum.
Meðal þessara ensíma eru
kítínasarnir sem brjóta niður
kítínið. Þróunin hefur síðan
orðið sú að ein mikilvægasta
genafjölskylda kítínasanna
inniheldur nú gen sem tjá
prótein sem hafa þróast úr
því að vera ensím í að vera
bindiprótein, binda efnið
í stað þess að brjóta það
niður. Það eru þessi prótein
sem virðast skipta sköpum
í nýmyndun vefja á fóstur-
skeiði hryggdýra, spendýra
og þar með mannsins en eru
síðan ekki virk í heilbrigðum
fullorðnum einstaklingi, fyrr
en einhvers konar skemmd
eða hrörnun á sér stað; þá
fara vefirnir að tjá þessi
prótein að nýju og svo virðist
sem tjáningin sé viðbrögð
vefjarins við skemmdinni.
jonas@frettatiminn.is
Tölvugerð mynd af húsnæði Genís við smábátahöfnina á Siglufirði
eftir endurbætur. Mynd Siglo.is
-óhþ
10 fréttir Helgin 16.-18. mars 2012