Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.03.2012, Side 12

Fréttatíminn - 16.03.2012, Side 12
KJÖTbúðin Grensásveg Helgarsprengja Opið: mán-fös 10-18:30, lau 11-16, sun lOkað kjúklingavængir í pirí pirí marineringu 495 kr./kg - verð áður 795 kr./kg lambalæri ½ úrbeinuð krydduð/marineruð 1.995 kr./kg - verð áður 2.795 kr./kg Helgarsteikin FrÁBÆr nÝJ Ung fylltar kjúklingabringur með gráðosti sveppum og brauðteningum vafnar inn í bacon 2.750 kr./kg - verð áður 3.750 kr./kg lambalæri 1/1 1.475 kr./kg - verð áður 1.998 kr./kg 2 fyrir 1 af öllum sósum S tolið mótorhjól, nektarmyndir og hót-anir um aðgerðir gegn þroskaheftu barni virðast vera helstu ástæður hrottafengnar líkamsárásar á Völlunum í Hafnarfirði undir lok síðasta árs þar sem ungri konu var misþyrmt hrottalega af tveimur karlmönnum og einni konu. Einar „Boom“ Marteinsson, leiðtogi Hells Angels, alræmdustu vélhjólasamtaka landsins, hefur verið ákærður í málinu ásamt fimm öðrum einstaklingum og varða brotin, sem ákært er fyrir, allt að sextán ára fangelsi. Einar og fjórir aðrir, Andrea Kristín Gunnarsdóttir, Jón Ólafsson, Elías Valdimar Jónsson og Óttar Gunnarsson eru ákærð fyrir sérstak- lega hættulega líkamsárás, rán, nauðgun og þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi auk þess sem Einar og Andrea eru talin hafa lagt á ráðin og skipulagt verknaðinn. Sjötti maðurinn, Grímur Sveinn Erlendsson, er ákærður fyrir að geyma fatnað og vopn sem notuð voru við árásina. Allir fingur af Í ákærunni segir að Andrea Jón og Elías hafa veist að fórnarlambinu með ofbeldi, slegið það og sparkað ítrekað í höfuð kon- unnar og barið, meðal annars með leður- kylfu. Fórnarlambinu var skellt í gólfið, það dregið á hárinu um íbúðina, hár þess var reytt, klippt eða skorið og rifið upp með rót- um. Skorið var eða klippt í hægri vísifingur fórnarlambsins, nögl slitin upp á sama fingri og hótað að allir fingur yrðu teknir af því ef það segði til árásarmanna. Auk þess neyddu þau fíkniefni upp í fórnarlambið. Þá segir í ákærunni að Andrea hafi lagt hníf að hálsi Berglindar og að Elías hafi stungið fingrum upp í endaþarm og kynfæri fórnarlambsins og klemmt á milli. Þessi verknaður liggur til grundvallar nauðgunarákæru málsins. Andrea, Jón og Elías hafa öll staðfastlega neitað ásökunum um kynferðisbrot gagn- vart fórnarlambinu við yfirheyrslur. Grátt leikið Samkvæmt ákærunni var fórnarlambið leikið grátt þegar verknaðurinn var framinn aðfaranótt fimmtudagsins 22. desember á síðasta ári. Fórnarlambið hlaut heilahrist- ing, mar, skrámur og yfirborðshrufl á and- liti, gagnaugum, hægri eyrnasnepli og höfði, glóðarauga og bólgu á vinstra auga, skalla- bletti í hársverði, mar á hægra kjálkabarði, mar og roðaför hægra megin á hálsi, dreifð eymsli í brjóstkassa og yfirborðsáverka á kvið, yfirborðsáverka á baki, roðabletti og fjölmargar rispur á upphandleggjum, báðum öxlum og ofanverðu baki, mar á vinstri kálfa, mar og eymsli á hægri sköflungi og tognun í lendarhrygg, brjósthrygg og hálshrygg, alldjúpan tveggja sentimetra skurð á hægri vísifingri og lausa nögl, roða og margar húðrispur innanvert á lærum, bogadregna rispu rétt utan við endaþarmsop vinstra megin, stóran marblett á vinstri rass- kinn og annan minni þar fyrir neðan, mikil eymsli í endaþarmi, leggögnum og spöng- inni þar á milli og áfallastreit- uröskun. Hjól, sími og peningar Samkvæmt gögnum og yfirheyrslum í málinu sem Fréttatíminn hefur undir höndum má ljóst vera að fjórir aðilar; Andrea, Jón, Elías og Óttar, voru inni í íbúð fórnarlambsins þegar árásin átti sér stað. Í vitnisburði Andreu kemur fram að hún taldi fórnarlambið hafa stolið mótorhjóli sem var hennar eign og hugðist sækja það. Jafn- framt vildi hún sækja síma sem hún átti og fórnarlambið hafði undir höndum en síminn innihélt meðal annars nektarmyndir af eigandanum. Myndirnar hafði Andrea til dæmis sent öðrum manni sem tengist þessu máli ekki. Í þriðja lagi taldi hún fórnarlambið hafa stolið frá sér peningum og vildi endurheimta þá. Auk þess segir Andrea við yfirheyrslur að fórn- arlambið hafi hótað að grípa til aðgerða gegn þroskaheftri dóttur hennar. Aðkoma Einars „Boom“ Marteinsson- ar að málinu er öllu óskýrari en annarra sem ákærðir eru. Af gögnum málsins er ljóst að hann fékk símhringingu frá fórnarlambinu skömmu fyrir árásina þar sem það bað hann um að lægja öldurnar milli þess og Andreu. Ljóst er að Einar tók fálega í það. Fórnar- lambið sagði við skýrslutöku að Einar hefði hótað sér en neitaði seinna að tjá sig um það atriði. Einar hefur stað- fastlega neitað aðkomu sinni að málinu í yfirheyrslum. Fyrir liggur að Andrea, Jón og Elías voru heima hjá Einari tveimur tímum fyrir árásina en að sögn allra fjögurra var þar eingöngu rætt um mótorhjólið sem þre- menningarnir vildu endurheimta frá fórnarlambinu. Einar var einn- ig í sambandi við Elías og Óttar morguninn eftir árásina en hann skýrir það á þann hátt að hann hafi viljað fá bílskúrshurðaopnara sem hann lánaði þremenningunum um nóttina til baka. Andrea, Jón, Elías og Einar „Boom“ voru öll úrskurðuð í áfram- haldandi gæsluvarðhald í héraðs- dómi á miðvikudag. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is  DómSmál líkamSáráS í Hafnarfirði Stolið mótorhjól, nektarmyndir og hefnd ástæða hrottalegrar líkamsárásar Sex einstaklingar eiga yfir höfði sér allt að sextán ára fangelsi eftir að ákærur vegna hrottalegrar líkamsárásar á hálfþrítuga stúlku voru þingfestar á miðvikudag. Meðal ákærðu er leiðtogi Hells Angels en ákæruvaldið telur hann einn geranda árásarinnar jafnvel þótt hann hafi verið í öðru bæjarfélagi þegar árásin átti sér stað. 12 fréttir Helgin 16.-18. mars 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.