Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.03.2012, Page 53

Fréttatíminn - 16.03.2012, Page 53
Helgin 16.-18. mars 2012 viðhald húsa 15 K Y N N I N G F yrirtækið Múrefni hefur flutt inn og þjónustað múrefni frá Weber UK Ltd á Ís- landi í 12 ár. Sigurður Hansson hjá Múrefni segir þá vera ekta fjöl- skyldufyrirtæki. „Allir þrír eigendurnir tilheyra sömu fjölskyldunni. Þetta er afskaplega þægi- legt og hentar okkur vel.“ Weber er einn stærsti framleiðandi tilbúinna sementsefna í heiminum í dag og á 32 ára sögu hér á landi. „Við höfum verið að þjónusta verktaka mikið með múrklæðning- ar utanhúss, flotsteypur (grautunarefni), viðgerð- arefni og varnarefni auk hágæða utanhússmáln- ingar fyrir steinsteypu með ótrúlega endingu á Íslandi. Einnig erum við stórir í innflutningi á flot- efnum til flotunar gólfa, bæði fyrir hefðbundið húsnæði og iðnaðargólf.“ Sigurður bætir því við að markmiðið hjá þeim hafi frá upphafi verið að þjónusta fagmenn með hágæða múrefni og hjálpa þeim að ná fram hámarks gæðum sem skili sér svo beint til þeirra viðskiptavina. „Við störfum mjög náið með Weber UK Ltd til að þjón- usta okkar viðskiptavini en þeir reka mjög öfluga viðskiptavinaþjónustu sem hefur nýst okkur vel til að ná settu marki. Okkar viðskiptavinir eru aðallega múrarar, bygg- ingaverktakar og hönn- uðir og lítum við fyrst og fremst á okkur sem heildsölu fyrir fagmenn. Við aðstoðum samt sem áður líka einkaaðila við að finna réttu efnin og réttan verktaka í þau verk sem koma inná borð til okkar.“ Utanhússklæðningar Stór liður í starfsemi Múrefna er innflutningur og sala á Weber UK Ltd utanhússklæðningum. „Það má segja að Weber hafi farið sigurför um Ís- land og staðið sig afburða vel hér á landi. Það sem um er að ræða er múr- kerfi utan á einangrun til klæðningar steinsteyptra húsa sem undanfarin tólf ár hafa reynst sérstaklega vel við íslenskar aðstæður. Klæðningarnar henta vel bæði á nýbyggingar af öllum stærðum og gerðum og eins til viðhalds á eldri húsum. Einn helsti kosturinn við notkun múr- klæðninga á steinsteypt hús til endurnýjunar er að húsið breytir ekki um upp- runalegt útlit eins og til dæmis ál og timburklæðn- ingar gera, heldur viðheld- ur upprunalegri hönnun og útliti. Ótal dæmi eru um að við vinnum með hönnuðum við að finna efni sem henta í hin ýmsu klæðningaverkefni því möguleikarnir eru margir bæði hvað varðar tækni- lega útfærslu og útlit, allt eftir hvað hentar hverju sinni. Við erum með hóp af múrurum sem hafi hlot- ið mikla reynslu í Weber UK Ltd klæðningum og viðgerðarefnum og margir hafa farið á námskeið í Bretlandi á okkar vegum til að auka þekkingu sína. Það segir kannski sína sögu að flestir fagmenn sem byrja að nota klæðn- ingarnar frá okkur halda því áfram því þeir treysti gæðunum og þjónustunni sem þeir fá. Ég hvet þá sem hafa áhuga að kynna sér betur það sem við höf- um uppá að bjóða að kíkja á heimasíðuna hjá okkur www.murefni.is <http:// www.murefni.is/>.“ Hágæða múrefni fyrir fagmenn  MúrefNI Ekta FljölskylduFyrirtæki Siguður Hansson, hjá Múrefni. islandsbanki.is | Sími 440 4000 Við bjóðum góða þjónustu Við bjóðum valkosti E N N E M M / S ÍA / N M 5 12 4 3 Íslandsbanki býður upp á valkosti í húsnæðislánum. Viðskipta vinum standa til boða verðtryggð lán með föstum vöxtum með vaxtaendurskoðun á fimm ára fresti og óverðtryggð lán þar sem hægt er að velja um breytilega eða fasta vexti fyrstu þrjú ár lántímans. Fáðu nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum í útibúum okkar eða á islandsbanki.is Hvaða leið hentar þér best? • Stöðug greiðslubyrði • Fastir vextir Verðtryggt húsnæðislán Óverðtryggt húsnæðislán • Hröð eignamyndun • Breytilegir eða fastir vextir

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.