Fréttatíminn - 16.03.2012, Page 55
Helgin 16.-18. mars 2012 viðhald húsa 17
K Y N N I N G
EIGNaumsjóN 10 ára
Létta stjórnum húsfélaga lífið
S tarfsemi Eignaumsjónar hf snýst um þjónustu við eigendur fasteigna og er í raun starfandi skrifstofa viðkomandi húsfélags,“ segir Daníel Árnason, fram-
kvæmdarstjóri Eignaumsjónar hf.
„Eignaumsjón hefur verið starfrækt undanfarin 10 ár og
í dag höldum við utan um daglegan rekstur fyrir mörg hús-
félög, jafnt á höfuðborgarsvæðinu sem úti á landi og hefur
þeim fjölgað á liðnum árum. Við tökum fjármálin yfir og
þar með innheimtu og álagningu gjalda, færum bókhald og
stemmum af öll mál upp í ársreikinga félaga og fleira. Í því
felst einnig að gæta réttinda félaga. Við höfum til dæmis séð
um að tryggja eigendum fasteigna réttindi til skattalækk-
unar í gegnum átakið Allir vinna.“
Fagmennska í fyrirrúmi
Daníel segir að í mörgum húsfélögum geti reynst erfitt að fá
hæft fólk til starfa. Með aðkomu Eignaumsjónar verða störf
stjórnarinnar mun léttari, þar sem tekið sé á málum af þekk-
ingu og kunnáttu og því fari minni tími fólks í þessi störf.
„Þegar taka á ákvörðun um viðhaldsmálefni þá hluta ég
yfirleitt ákvörunina niður í nokkra kafla. Í fyrsta lagi snýst
það um hvort og hvernig eigi að standa að viðhaldinu. Það
er mjög þýðingamikill kafli því að aðstæður eru misjafnar
og vandrataður góður meðalvegur.“
Að sögn Daníels er mikilvægt að vanda allan undirbún-
ing:„Við tökum oft þessar ákvarðanir með húsfélögum í
áföngum þannig að tryggt sé að menn leiti að hagkvæmustu
leiðunum til að fara í gegnum þetta. Ef menn ætla svo út í
meiriháttar viðhald fasteigna þarf að ákveða hvernig á að
standa að framkvæmdinni, hvernig á að bjóða hana út og
hvort á að ráða fagaðila til eftirlits. Ekki má heldur gleyma
hvernig á að fjármagna verkefnið og þá þurfum við að velta
fyrir okkur hvort þetta sé spurning um lántöku eða að finna
þann hraða á innheimtu sem hentar eigendum. Allt þetta
þarf að vanda og við erum orðin ansi þjálfuð í að liðsinna
fólki í gegnum ferlið. Í lokin þarf svo að gera upp verkefnið
með tilliti til sameignarkostnaðar og séreignarkostnaðar.“
að bæta andrúmsloftið
Daníel bætir því við, að endingu, að starfsmenn Eignaum-
sjónar vinni einnig að því að bæta rekstur húsfélaganna og
ná stöðugleika í rekstrinum. „Við viljum bæta andrúms-
loftið í húsfélögum og það gerum við með því að hafa allar
upplýsingar á reiðum höndum fyrir eigendur, hvort sem
það snýr að fjármálum eða almennum húsreglum því okk-
ar reynsla er sú að því betra sem upplýsingaflæðið er því
meiri skilningu og þekking er á málefnum húsfélagsins.“
Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar.