Fréttatíminn - 16.03.2012, Blaðsíða 74
54 fermingar Helgin 16.-18. mars 2012
Fermingarbörn Fúlsa ekki við reiðuFé
Óskalisti fermingarbarnsins
Góður andi í fermingarfræðslu í Neskirkju.
Langar að
heyra mig
syngja
Jökull Sindri
gunnarsson 14
ára
„Mig langar í hljóðupp-
tökutæki. Ég er
nefnilega að læra að
syngja og væri til í að
geta hlustað betur á
röddina mína,“ segir
Jökull Sindri. Hann
hefur verið í kór í sjö
ár og er nýbyrjaður
í tímum hjá Sverri
Guðjónssyni kontraten-
or. Hann langar líka
mikið iPod. „Ég vona að
ég fái líka peninga svo
ég geti svona valið sa-
man hvað ég get keypt.“
Langar til
Parísar
maría Kristín
Árnadóttir 13 ára
María Kristín væri alveg
til í að fá ferð til Parísar
eða Ítalíu í fermin-
gargjöf. Hana langar
einnig í peninga og
jafnvel iPad. Hún hefur
ekki enn sagt neinum
frá þessum óskalista.
Aðspurð hvort henni
þyki líklegt að sá
draumur verði að
veruleika segir hún
einfaldlega: „Ég veit
það ekki.“
Langar til
afríku eða
Kína
Viktoría björk
Ferret 13 ára
„Mig langar í myndavél
og að fara til útlanda,“
segir Viktoría Björk.
Myndavélin á helst
að vera frá Nikon eða
Canon með stórri linsu.
Þegar hún er spurð
hvert hún vilji fara til
útlanda, skýtur María
Kristín því inn að þær
skuli fara saman! „En
mig langar til Afríku eða
Kína!“ svarar Viktoría
Björk. Hún hefur látið
fólk vita af þessum
óskalista. Blaðamaður
spyr: Hvernig leist fólki
á? „Mömmu finnst þetta
frekar brjálað.“
Ánægð
með að fá
nýtt rúm
guðrún Lára
Þórsdóttir 13 ára
„Mig langar í nýtt rúm
vegna þess að rúmið
mitt er pínu lítið,“ segir
Guðrún Lára. Hana
langar líka í stóra svarta
myndavél með linsu og
pening. „Ég veit reyndar
að ég fæ rúm. Mamma
er búin að segja mér
það. Þannig, ég er mjög
ánægð með það. En ég
veit ekki um neitt annað
sem ég fæ,“ segir hún.
Fær rúm og
langar í
Playstation 3
5. garðar
Thorstensen
13 ára
Garðar segist vita að
hann fái nýtt rúm. Hann
langar líka í Playstation
3 leikjatölvu og ýmsa
leiki, eins og GTA, As-
sassins Creed og Call of
Duty jafnvel. Hann
langar í „dock“ til að
tengja iPodinn við og
hátalara með. Einhverja
almennilega. „Jú og
pening, svo ég geti
ráðið því í hvað pening-
urinn fer,“ segir hann.
F réttatíminn hitti nokkra skemmtilega táninga sem voru í fermingarfræðslu
í Neskirkju í vikunni. Þar var
ánægjulegur andi og æsku-
lýðspresturinn virtist hafa góð
tök á hópnum. Blaðið settist
niður með fimm ungmennum
og spurði þau hvað þau langaði í
fermingargjöf, en fermingarbörn
hafa jú almennt lengi verið ansi
spennt fyrir því bíður í pökkun-
um eftir að þau hafa staðfest trú
sína í messu. Einn úr hópnum
viðurkenndi fúslega að gjafirnar
hafi mikið aðdráttarafl. En hvað
heillar táningana í dag? Hópur-
inn var mjög spenntur fyrir því
að fá reiðufé – til að geta ráðið
sjálf og eignast það sem þau
langar virkilega í. Peningum má
jú breyta í margt skemmtilegt.
Tveir í hópnum fá rúm að gjöf,
tvo langar mikið til útlanda –
jafnvel alla leið til Afríku eða
Kína, myndavélar með stórri
linsu heilluðu líka ásamt iPod
og almennilegum hátölurum.
Skoðum nánar hvað er á óska-
listanum hjá þeim.
www.kolors.is
Fyrir hverja selda tösku er plantað tré
Framleiddar eftir Fair Trade stefnunni
Umhverfisvænar tískutöskur
Búnar til úr sælgætisbréfum, dagblöðum, gosdósaflipum o.fl.
Vestmannaeyjum
Frábær fermingargjöf
Akureyri
Hannaðu fermingarkortið
á oddi.is
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
NÝR
END
URB
ÆTT
UR
VEF
UR