Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.03.2012, Síða 90

Fréttatíminn - 16.03.2012, Síða 90
STARFANDI SÉRSVEITARMENN BANDARÍKJAHERS US NAVY SEALS FARA MEÐ HLUTVERK PERSÓNANNA Í MYNDINNI.   SAGAN ER SKÁLDSKAPUR EN VOPNIN OG AÐFERÐIRNAR RAUNVERULEGAR.   BYGGT Á RAUNVERULEGUM VERKEFNUM SÉRSVEITA BANDARÍKJAHERS US NAVY SEALS. SÝNDU HVAÐ Í ÞÉR BÝR. SENDU SMS SKEYTIÐ ESL ACT Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. FRUMSÝND Í DAG! FULLT AF VINNINGUM: BÍÓMIÐAR TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA! VILTU VINNA MIÐA? N ýir eigendur hafa lagt undir sig verslunina Orginal í Smáralind sem hefur gjörbreyst við það á aðeins nokkrum dögum. Verslunin er nú bjart- ari en var og fersk með splúnkunýjum vörum. „Okkar helsta fyrir- mynd er bandaríska tískukeðjan Forever21 sem er með hátískufatn- að á frábæru verði,“ segir Fanney Anna Ómarsdótt- ir verslunar- og innkaupa- stjóri hjá Orginal. „Við erum komin í sam- band við frábært fólk á stórum heildsölum út um allan heim þar sem við getum nálgast nýjustu tískuna á góðu verði. Fatnaðurinn í kvenna- deildinni er litríkur og fjörugur og höfðar meira til ungu kynslóðarinnar. Karladeildin er þó með mun breiðari kúnnahóp og kaupum við inn fatnað frá þremur vinsælum merkjum. Kúnnarnir geta svo fylgst grannt með nýjustu fréttum verslunarinnar þar sem við höldum úti blogginu shoporginal.blogspot. com.“  OrgiNal Ný Og breytt í SmáraliNd Forever21 er fyrirmyndin Býður aðdáendum í frían jógatíma Victoria's Secret engillinn Miranda Kerr ætlar að bjóða 500 aðdáendum í frían jógatíma þann 1. apríl þar sem hún mun sjálf leiðbeina. Allt sem hún biður um í staðinn er að þessir 500 sendi út sínar eigin útgáfur á myndbandinu I will if you will, sem er herferð þar sem allir eru hvattir til þess að taka afstöðu gegn ónýttri orku. Í myndbandinu á að koma fram að allir eiga að slökkva ljós heimilisins milli 20.30 til 21.30 þann 31. mars. „Sorglegt hversu mikil orka fer til spillis, sem svo eyðileggur um- hverfið. Við erum aðeins gestir á þessari jörð og erum því skyldug til þess að ganga vel um fyrir næstu gesti,“ sagði Miranda í tilkynningu sem hún gaf út á dögunum. Flytur sig yfir í fatahönnun Fyrirsætan Agyness Deyn, sem gerði garðinn frægan hjá helstu tískumerkjum heims í byrjun þessara aldar, hefur verið ráðin sem hönnuður hjá Dr. Martens tískuhúsinu. Dyen mun fara í að hanna skó, fatnað og skart- gripi fyrir fyrirtækið og segist hún hlakka mikið til þess að hefja störf. „Ég hef verið dyggur aðdáandi tískuhússins síðan ég keypti mér fyrstu Dr. Martens-skóna þegar ég var 13 ára. Síðan þá hef ég, með hjálp fyrirtækisins, skapað minn eigin stíl á ég þeim mikið að þakka með það hvernig ég er í dag,“ sagði fyrirsætan í viðtali við tímaritið WWD á dögunum. Fyrrum The Hills-raunveru- leikastjarnan, og nú hönnuður- inn, Whitney Port kynnti í vikunni nýja fatalínu undir fatamerki hennar: Whit- ney Eve. Nýja línan er mun ódýrari en þær flíkur sem hún hefur verið með á mark- aði undanfarin fjögur ár og er markmið hennar með línunni að stækka kúnna- hóp sinn og höfða til sem flestra. Línan mun aðeins samanstanda af fimm ólíkum flíkum til að byrja með en ætlunin er þó breikka hana til muna fyrir haustið. Jimmy Choo hannar skó til heiðurs níræðri tískudrós Skóhönnuðurinn Jimmy Choo tilkynnti á miðvikudag- inn síðasta að nýtt skópar sé á leiðinni frá fyrirtækinu sem mun heita Írisar- skórinn. Það er þó ekki saga að segja til næsta bæjar, nema hvað að skórnir eru sérstaklega hann- aðir fyrir hina níræðu Iris Ap- fel. Skórnir eru svartir glans- skór með tíu sentímetra hæl og þykir flestum forvitnilegt hvernig hin aldna tískudrós, hún Iris, ætli að bera sig í slík- um. Sú gamla mun vera andlit fyrirtæksins og standa vonir til þess að hún muni með atgervi sínu gera skóna ódauðlega. Iris Apfel er eftirsótt af fleiri tískufyrirtækjum og skrifaði hún nýlega undir samning við snyrtivörufyrirtækið MAC og er hún andlit nýrrar förðunar- línu fyrirtækisins. Markmiðið er að höfða til sem flestra 70 dægurmál Helgin 16.-18. mars 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.