Fjölnir - 30.10.1997, Page 11

Fjölnir - 30.10.1997, Page 11
Hannes Lárusson Snerting Jyrstu árum sem Gosa inn í Letingjaland oggera það fljótt samdauna. Hver sá sem vill hitta unga fólkið í myndlistinni á vettvangi rambar á það einhvers staðar á Laugaveginum á leiðinni frá Myndlista- og handíðaskóla íslands niður á Nýló og Klapparstíg. En það liggur ekkert á þvíþessi ganga tekur marga 15—20 ár. “ Sögur urigq f6lk»ins Það er góð latína þegar skrifað er að minnast á unga fólkið og leggja þannig inn til mögru ár- anna. Hver man nú ekki eftir því þegar Halldór Björn kvaddi sér hljóðs á ftmdi Sambands ís- lenskra myndlistarmanna (SÍM), var aftast í saln- um, lét sig þó haiá það að dpla upp í pontu til að segja: „Við listamenn megum ekki skella hurð- inni á nefið á unga fólkinu." Þetta hafði svo mik- il áhrif á fundarmenn að grafárþögn varð um smnd, menn horfðu hver á annan, en sumir þreifúðu á ósjálffátt á nefjum sínum. Að sjálfsögðu er „unga fólkið" hluti af nú- verandi ástandi í myndlistarheiminum. Brandur og Skolli tæla það strax á fyrsm árum sem Gosa inn í Letingjaland og gera það fljótt samdauna. Hver sá sem vill hitta unga fólkið í myndlistinni á vettvangi rambar á það einhvers staðar á Lauga- veginum á leiðinni ffá Myndlista- og handíða- skóla íslands niður á Nýló og Klapparstíg. En það liggur ekkert á því þessi ganga tekur marga 15-20 ár. Þá er glæta fyrir því að einn af ungu kynslóðinni hafi unnið sig upp í nefnd í gegnum SÍM sem opnað gæti „hinum“ hverfúlar smugur í hallarmúra kerfisins. — Og þar sem það skríður sem mýs inn um smugurnar heldur „unga fólkið“ upp á það að vera loksins komið í liðið með því að gefa hvert öðm sandala, síðan er skálað í kok- teilnum „Paradís". Á göngunni löngu verður unga kynslóðin að halla sér að fjölskyldu og ætt- arveldi ef þess nýtur við. Annars verður að treysta á þrautseigju í óteljandi myndum sem flýdr svo öldrun í öllu bröltinu og asvintýmnum sem í boði em á Stóra-steini og víðar að á árunum „á leiðinni" dignar svo púðrið að eldinn gera svefn- göngurnar sér nú að leikfangi. Unga fólkið skilgreinir sig í gegnum þær sög- ur og goðsögur sem það býr til um sig og segir hvort af öðru. í gegnum eigin sögur verður sjálfs- mynd og tromp kynslóðanna dl. Nú er að hlusta? Það skyldi þó aldrei vera Halldór Björn sem enn á ný reisir fingur á næsta fúndi undir yfirskriftinni „sögur unga fólksins"? Á þessum vikum hafði vettvangurinn reyndar ekki sofið ffekar en fyrri daginn. Á Stóra-steini halda burtreiðarnar og lautarferðirnar áfram inn í miðaldir og frumskóga og þilfarsbjórinn lætur karlana stundum finnast þeir vera orðnir sjóræn- ingjar í Suðurhöfúm, komast í romm og fjár- sjóðssmð. En stundum er nautaat. Og nautin hafa stóra hramma og eiga til að taka sérhvern nautabana kverkataki og gera sig líklega til að hengja þá í eigin bindum. Síðan slengja þau út úr sér alþjóðlegum tungum: „I know this guy, he is an absolute nobody.“ Á elleftu stundu er atið stoppað þar sem apríkósu- litaða bindið, sem reyndar var ædað í annað at, slær blindu í rauðsprengd augu. Gæfan hefúr nú óvænt snúist þar sem flugið er tekið á ný við kall óminnishegrans. Áður en næsta at hefst og nauta- banar gerast nautavinir, má heyra í túlkandi rappi: „He's OK!“ „He's OK!“ Kverkatökin vilja verða mörg í paradís, þó hver annan drepi menn jafnan í gamni. En aftur á mód er ekkert stríð í sölum lénsherranna okkar, því þegar héma er komið sögu em þeir búnir að sofa um hríð sínum þyrnirósarsvefni á sínum grænu eyrum meðan steinbörunum vex ásmegin. (Er nú ekki búið að hamra nóg á þessum léns- herrum? Er þetta þessi stríðni sem var lofað? — Nær væri að kalla þetta dylgjur og þráhyggju; og því þá ekki hnútukast?) Stiflur. Wóð og bowlci Myndlistarheimurinn á íslandi er byggður á þremur meginstofnunum sem affur er stjórnað beint og óbeint af fjármagni og fúlltrúum frá ríki og borg. Þessar stofnanir em Listasafn íslands, Kjarvalsstaðir og Myndlista- og handíðaskóli íslands. Hér er eins og allir vita fyrir hendi nær allt fjármagn, svo veltur á hundmðum milljóna, og bolmagn til framkvæmda á íslenskum mynd- listarvettvangi. f bænum em nokkrar listmuna- búðir sem em næstum því fyrir utan hinn eigin- lega listaheim; nema þegar kemur að fimmtugsaf- mælum, þá er skodð saman í málverk. Ónefnd em nokkur gallerí sem kalla má hina borgaralegu útgáfú af heimagalleríunum, Ingólfsstræti 8, Gallerí Sarvars Karls og önnur hæð sem var. í þessum galleríum má ef til vill segja að helstí vaxtarbroddurinn í myndlistarheiminum hafi verið undanfarið, því í þeim hefúr verið gerð tilraun til þess að skapa borgaralegan smekk og snobb fyrir nútímamyndlist. — Þó jafnan faist fáir reyndar í snobbið nema helst gamlir nýló- menn. — Einhver helsti veikleiki íslenska mynd- listarheimsins er að borgarastéttin virðist vera orðin algerlega afmennmð um eðli, mikilvægi og verðmætí myndlistar. Afmennmn menntamanna í listrænum efnum er að sínu leyti grátbroslegust, ekki síst þegar þeir hælast um yfir eigin glám- skyggnni og harðlífi, sbr. greinaflokk KristjAns KristjAnssonar um póst-modernisma í Morgun- blaðinu nú í haust. En einmitt þessi staðreynd eykur svo enn á svigrúm fyrrnefndra stofnana til að drepa íslenska myndlistarmenn og möguleika myndlistariðkunar í landinu — ég ætla að vona, rétt að vona „óvart“ — í dróma. Og til að bæta gráu ofan á svart hafá þessar stofúanir svo verið í innbyrðis samkeppni. Hver man ekki togstreitu Bem og Gunnars sem enn hefúr hert á hnútun- um? Hverjum dytti það í hug að í þessu þorpi þar sem er ekki einu sinni dregið fyrir glugga væm raunverulegar forsendur fyrir samkeppni milli myndlistarstofnana? Að hinu leytinu er myndlistarheimurinn auð- vitað knúinn áffarn af starfsemi myndlistarmann- anna sjálffa. Fyrir utan að búa til alla myndlistina reka þeir Nýlistasafnið og sýningarrými af ýms- um stærðum í lengri eða skemmri tíma, auk hinnar sérstöku heima- og smágalleríaflóm. Ef ekki á Klapparstígnum um helgar þá hitta menn listamennina á Laugaveginum í miðri viku. í hópnum em dugnaðarforkar, gæðablóð, hug- sjónamenn, lævísir sjálfsbjargarmenn, þöglar og tómar fyllibytmr sem em að safna kröftum fyrir helgina, dreymnu og ísmeygilegu konumar í löngum bunum, nefndaforkar, kjaftatíkur, nokkr- ir læmingjar og einstaka eimrpadda. Hér hefúr myndJistarheiminum verið lýst. En hugsum okkur nú nokkra möguleika í stöðunni. — Á nú að hleypa á hugmyndaflóði eða kannski að stofna hugmyndabanka? „Ég er illa gift, — eða er ég velgjft? —> en ástina vant- arl Þú ert fallegur og gáfaður, ég elska þig! Er ég ekki falleg?, elskarðu mig!, taktu • i« mig! Auglýsing < Fullorðinsfræðsla Prófadeild — Öldungadeild Grunnnám. Fornáni. Samsvarar 8., 9. og 10. bekk grunnskóla. Framhaldsskólastig. Almennur kjami og sérgreinar heilsugæslubrauta. Aðstoðarkennsla í stœrðfrœði fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskóla. Sérkennsla í lestri og skrift. Sérstakur stuðningur við vaktavinnufólk í námi. Aðgangur að nemendatölvum. Almennir flokkar — frístundanám Tungumál (byrjenda- og framhaldsnámskeið) Islenska fyrir útlendinga. Danska. Norska. Sænska. Enska. Þýska. Hollenska. Franska. Italska. Spænska. Portúgalska. Gríska. Rússneska. Pólska. Japanska. Arabíska. Kínverska. Verklegar greinar og myndlistarnámskeið Fatasaumur. Skrautskrift. Postulínsmálun. Bókband. Glerlist. Teikning. Olíumálun. Vatnslitamálun. Prjónanámskeið. Leðurvinna. Húsgagnaviðgerðir. Önnur námskeið Margvísleg námskeið um sögu, menningu og trúarbrögð, m.a. Afþreyingarmenning nútímans, fyrirlestrar - umræður. Leikhúskynning - námskeið í samvinnu við Leikfélag Reykjavíkur. Samskipti - sjálfsefli. Tarotlestur. Starfsnámskeið fyrir fólk í umönnunarstörfum. Átaksverkefni fvrir atvinnulausa. Hópar fólks sem œskja fræðslu um tiltekið efni sem ekki er á námskrá geta snáið sér til okkar og við reynum að koma til móts við óskir þeirra. Skólagjöld í Námsflokkum Reykjavíkur miðast við kennslustundaijölda og er haldið í lágmarki. Kennt er í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1 og í nýju húsnæði okkar í Mjódd, Þönglabakka 4. Upplýsingar í síma: 551 2992. Fax: 562 9408. Netfang nfr@rvk.is

x

Fjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.