Fjölnir - 30.10.1997, Síða 30

Fjölnir - 30.10.1997, Síða 30
Hannes Sigurðsson Landnáma hin nýja Ásgrímur Jónsson á göngu í Weimar árið 1908. yyÁ leiðinni heim gegnum Þýskaland rakst hann á stóra impressjónistasýn- ingu í Weimar. En þráttjýrir yfirlýsta aðdáun Asgríms á Van Gogh og im- pressjónismanum almennt gœtir áhrifa frá stíllegri hugvitssemi þeirra listamanna ekki í verkum hansjýrr en síðla á 3. ára- tugnum þegar hann gerði jýrstu hikandi tilraunimar til að draga Lerdóm af þeim í birtu- og litanotkun. “ Fj 30 olnir timarit handa islendingum hnust '97 Frumkvöðlarnir í myndlistinni voru eins og aðrir landsmenn á þeim tíma feddir og uppaldir í sveit. Þótt þeir heíðu tækiferi til að kynna sér hið nýja mál módernismans meðan á námi þeirra erlendis stóð vom bakgrunnur þeirra og hvatimar að baki því að verða listamaður af allt öðm tagi en sú borgarmenning sem svo mjög var farin að setja svip á verk starfsfélaga þeirra á meginland- inu. Alltént er erfitt að koma auga á merki um slík menningaráhrif í verkum íslensku listamann- anna. Einkum á þetta við um Ásgrím sem lýsti snemma á ferli sínum yfir mikilli aðdáun á Van Coch. Hann var fýrsti íslendingurinn sem helgaði sig einvörðungu myndlist, en hugarfer hans og lífsspeki átti ræmr að rekja til síðasta skeiðs bændamenningarinnar áður en iðnvæðing og stéttabarátta hófst fýrir alvöru snemma á 4. ára- tugnum. Eftir þriggja ára nám í tækniskóla ( Kaup- mannahöfh fékk Ásgrímur inngöngu í Konung- legu akademíuna aldamótaárið. Þá lá akademían þegar undir ámæli fýrir úreltar kennsluaðferðir sem væm fjandsamlegar nýjum listastraumum. Lögð var áhersla á myndbyggingu sem væri stærðfræðilega rétt og trúverðug, unnin með skarpri formsköpun og nostri við smáatriði og byggðist á staðgóðri þekkingu á mannslíkaman- um. Utkoman var eins konar „ljósmyndaraun- sæi“ undir áhrifum ffá nýrómantík og þeirri þjóðernishyggju sem byrjaði að gegnsýra hugsun- arhátt í Skandinavíu á síðasta áratugi 19. aldar. Þessi áhersla á það sem gjarnan er kallað „raun- sæi“ — Þórarinn bætti iðulega við hól eða fjalli myndbyggingarinnar vegna — var tjáningarmáti sem féll vel að ætlunarverki Ásgríms. Þetta var stíll sem hann gat litið á sem „menningarlega hludausan" og gætt „sanníslenskum" drátmm. Ef marka má sjálfsævisögu Ásgríms virðist sem hann hafi verið í þann mund að segja skilið við þessa skammvinnu hefð heima fýrir. Alveg frá upphafi, segir Ásgrímur í bók sinni, var hann óánægður með aðferðirnar sem kenndar vom í akademíunni, en þrátt fýrir þessa óánægju var hann þar sex annir áður en hann hætti og fór að nema upp á eigin spýtur. Þversögnin sem virðist vera milli endurminninga Ásgríms og fýrstu verka hans verður aðeins skýrð í ljósi þeirra miklu vona sem honum fannst að bundnar væm við sig og snerust um að skapa „þjóðlega" íslenska sýn og tilrauna hans til að réttlæta íhaldssemi þessara verka á tíma þegar módernisminn hafði náð fótfestu. í sjálfsævisögu hans, sem Tómas Guð- mundsson skráði 1956, kemur ekki á óvart þegar hann skýrir frá því hversu heillaður hann hefði verið af „Landslagi í Saint-Rémy“ (1889) eftir Van Gogh þegar hann sá myndina í Ríkislista- safninu í Kaupmannahöfn á fýrsta ári sínu í akademíunni. Hann lýsir málverkinu sem „ógleymanlegu“, „óvenjulegu“ og „ótrúlega fersku í formi og lit“ og lýsir fiirðu sinni yfir því að myndin skyldi ekki líka vekja hrifningu samstúd- enta hans. Með því að tala niðrandi um akademí- una og lýsa því hve hann hafi snemma lært að meta hæfileika Van Goghs sem, að sögn hans, Danir báru ekkert skynbragð á virðist Ásgrímur vilja gefá í skyn tvennt, sem hvergi nærri fer samræmst; að fýrstu verk hans, sem voru afar íhaldssöm, hafi verið eins konar sjálfsprottinn íslenskur „heimilisiðnaður“ og samt undir áhrif- um ffá svo róttækum og nútímalegum straumum að enn voru menn að ræða í eldmóði um þýð- ingu þeirra í hópum framúrstefhumanna í Þýska- landi og Frakklandi. Ásgrímur var ekki bara tæki- ferissinni, heldur virðist hann eftirá hafa fundið hjá sér hvöt tíl að leggja áherslu á listrænan heið- arleika sinn og sjálfstæði. Hann virðist hins vegar ekki gera sér grein fýrir því að þegar Tómas ræðir við hann á miðjum 6. áratugnum er hann búinn að breyta stíl sínum og laga hann að þörfum valdakerfis sem var mun flóknara og erfiðara að henda reiður á en ættaveldi gömlu heimastjórnar- innar í byrjun aldarinnar, eins og við víkjum að síðar. Ásgrímur fékk kjörið tækiferi til að kynna sér framúrstefhuhreyfingar á meginlandi Evrópu árið 1908 þegar Alþingi veitti honum 3000 króna styrk, óvenju rausnarlega upphæð, til að gera honum kleift að nema á Ítalíu í eitt ár. Á leiðinni heim gegnum Þýskaland rakst hann á stóra im- pressjónistasýningu í Weimar. En þrátt fýrir yfir- lýsta aðdáun Ásgríms á Van Gogh og impressjón- ismanum almennt gætir áhrifa ffá stíllegri hug- vitssemi þeirra listamanna ekki í verkum hans fýrr en síðla á 3. áramgnum þegar hann gerði fýrstu hikandi tilraunirnar til að draga lærdóm af þeim í birtu- og litanotkun. Það var í raun ekki fýrr en snemma á 5. áratugnum að áhrif Van Goghs verða svo greinileg að þægilegra er að lýsa sumum þeim verkum sem Ásgrfmur málaði á síðustu tólf árum sinnar fjölskrúðugu starfsævi sem stælingum á þeim listamanni en að þau hafi verið gerð undir beinum áhrifum ffá honum, samanber til að mynda Hiisafellsskógur ffá 1947 (L.Í.) [MYND 5]. í einu stærsta og stórbrotnasta málverki Ás- gríms, Heklu (L.í.) [mynd 6] ffá 1909, kemur vel fram hvernig hann kaus í raun að sýna íslenskt landslag. Óvenjulega voldug hlutföll verksins (150 x 290 cm), val myndefhisins — skáldin höfðu fýrir löngu gert fjallið að þjóðargersemi — og útfersla þess höfðuðu strax til fegurðarskyns Alþingis og ríkið keypti það fýrir 2000 kr. Sé litið ffam hjá stærðinni er verkið ekki ósvipað Stórasjó og Vatnajökli Þórarins hvað myndbyggingu og andrúmsloft áhrærir. Merkilegt er þó að í for- grunni myndarinnar er einkennileg og fýrirvara- laus brekka sem minnir á seinni myndir Cézannes af fjallinu Mont Sainte-Victoire. Flameskjuáhrif- in sem Ásgrímur vill ná með því að beita bragði ffá Cézanne gæm þó ekki verið fjær markmiðum módernískrar myndlistar. Hvert atriði myndar- innar er greinilega afmarkað af útlínum enda deildi hann ekki áhyggjum Cézannes af því hvernig hann átti að fara ffá údínum hlutanna að því sem að „baki þeim liggur“ né reyndi hann að tengja hvern hluta upplifunar sinnar, hvert Mynd 5: ÁSGRlMUR JöNSSON Húsafellsskógur, 1947 pensilfar, í yfirborðsmunstri forms og lita. Þar að auki ædaði Cézanne hverju málverki að vera nákvæma skráningu ákveðinnar einstaklings- skynjunar. Þetta kallaði hann sitt „optique" en hvert málverk var samþætting sh'kra skynáhrifa gegnum hans eigin „logique". Áhersla Cézannes á sína persónulegu og flöktandi skynjun, sem steypt var í mót rammgerðrar myndbyggingar, dregur fram hve mikla þörf framúrstefnan hafði fýrir að undirstrika sérstöðu og vitsmunalega yfir- burði sinnar eigin sýnar. Cézanne læmr í veðri vaka að aðeins hann hefði getað skynjað landslag- ið og lýst því eins og hann gerði og að þar sem hann ynni í samræmi við innsm tilfinningar sínar væru málverkin ekki lengur bundin ákveðnum stað heldur flytm almenn sannindi. Þessu er þveröfugt farið hjá Ásgrími, en brautryðjandahlutverk hans fólst fýrst og ffemst í því að örva og treysta samkennd heillar þjóðar. Það skipti hann margfalt meira máli að vera trúr þjóð sinni en náttúrunni eins og Cézanne predik- aði sýknt og heilagt. Bæði hjá honum og Þórarni vógu hugmyndir um þjóðareiningu og heild þyngra en hinn skynjanlegi heimur sundraðra fýrirbæra. í þeirra augum var „hollusta við nátt- úruna“ ekki eingöngu byggð á athugunum og lýsingum á því sem bar fýrir augun, heldur inn- sæi eða formrænum uppspuna og djúpri lotningu fýrir þeirri sögu sem landið hafði að geyma. Frumkvöðlar íslenskrar myndlistar þurftu að kljást við margvísleg vandamál til þess að geta léð þjóðernishyggjunni myndræna tjáningu. Ekkert var þó erfiðara en að flytja bókmenntalega hug- hyggju inn í málverkið. Rómantísku skáldin átm auðvelt með að fenga athygli lesenda með orða- vali, með því að magna upp ákveðna þætti lands- lagsins en sleppa öðrum sem þótru miður, en málarinn varð hins vegar, í samræmi við eðli miðilsins, að tjá sýn sína í heilu lagi, ef svo má segja, ffekar en með safhi brota. Sú sæla sem stafár ffá sofendi dalnum fýrir neðan okkur í Heklu gerir okkur erfitt fýrir að ímynda okkur að fjallið sem við stöndum andspænis sé í raun eitt hættulegasta eldfjall í Norður-Evrópu. Eldfjallið sem gnæfir yfir landslaginu feðmar að sér nokkra bæi sem kúra við brjóst þess. Listamaðurinn miðlar andrúmsloffinu í fýrsm morgunskímunni. Frá hálfeofendi bæjunum á graslendinu leggur hvítan reyk til lofts sem gefur til kynna að morg- unverkin séu nýhafin. Þessi fegraða túlkun lands- lagsins, sem tjáir ffiðsæla sambúð manns og nátt- úru, er mjög í samræmi við anda rómantísku skáldanna eins og þau höfðu margoft sýnt og sannað á öldinni á undan. Þau lýsa t. d. aldrei eyðileggingunni af völdum eldgoss. Ásgrími var hins vegar fullkunnugt um að þetta eldfjall ætti sér aðra hlið og gæti fýrirvaralaust breyst úr vinalegum risa í öskrandi skrímsli. Árið 1878 fýlgdist hann með miklu eldgosi í Krakatindum rétt norðaustan við Heklu. Þótt hann hafi ekki verið nema tveggja ára þá segist hann muna þennan atburð knallskýn: „Það er ekki fýrr en fjörutíu ámm síðar, að ég kemst að hinu sanna um þetta áhrifemikla fýrirbæri, sem geymzt hefur með mér alla tíð, án þess að mér kæmi til hugar að leita á því skýringar." (Hrafnhildur Schram: Ásgrimur Jónsson. bls. 24.) Það er einkennilegt ósamræmi milli orða og gerða í endurminningum Ásgríms. Hann gefur í skyn að þótt þessi skelfilega reynsla hafi setið í honum og haldið áffam að naga hann það sem Mynd 5: ÁSGRlMUR JÓNSSON Hekla, 1909
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.