Fjölnir - 30.10.1997, Qupperneq 78

Fjölnir - 30.10.1997, Qupperneq 78
Hafa skal það sem sannara reyníst íhuga framboð til sveitarstjórna og Alþingis „Við höfum áhuga- samasta fólkið og skoðanlr og lausnir á nánast öllum málum," segir Vlðar Friðþjófsson, formaður samtak- anna. Að sögn Viðars Friðpjófssonar, formanns ný- stoínaðra Landssamtaka einsmáls-félaga, er stjórn samtakanna að kanna hug ýmissa félagasamtaka um sameiginlegt framboð til sveitarstjórna og Alþingis. Meðal þeirra félaga sem leitað hefur verið til má nefna Samtök aldraðra, Heimili og skóla, Félag íslenskra biffeiðaeigenda, Vímulausa æsku, Geðhjálp, Félag atvinnulausra, Leigjenda- samtökin, Börnin heim, Samtök um aðskilnað ríkis og kirkju svo aðeins fáein séu nefnd. Að sögn Viðars lofa fyrsm viðbrögð stjórnarmanna í þessum félögum góðu. „Ef okkur tekst að stilla saman strengi þessara félaga sé ég ekki hvað gæti komið í veg fýrir framboð og stórsigur í öllum bæjum, hreppum og kjördæmum. Ég sé ekki bet- ur en við séum að eignast stjórnmálaflokk sem hefur ekki aðeins allt áhugasamasta fólkið innan- borðs heldur er í fæðingu flokkur sem hefur skoðanir og lausnir á nánast öllu. Þetta verður flokkur sem nær djúpt ofan í grasrótina,“ segir Viðar. víðbrögð írið daufu starfi stiörnrwqlqflolcteci__________ Viðar segir Landssamtök einsmáls-félaga (LEMF) vera tímabær viðbrögð við daufú starfi hefðbund- inna stjórnmálaflokka. „Venjulegt fólk gengur ekki lengur í stjórnmálaflokka, þar eru aðeins þeir sem sækjast eftir frama í atvinnustjórnmál- um,“ segir Viðar. „Ég hef rætt við fjölda fólks sem hefur starfað innan flokkanna og reynt að vinna þar að sínum hugðarefhum en síðan gefist upp. Maður með áhuga á aukinni stærðfræði- kennslu í skólum þarf til dæmis að berjast fyrir því ár eftir ár að komast að í menntamálanefnd flokksins og þegar þangað er komið þarf hann að sveigja aðra nefndarmann að skoðunum sínum svo hægt sé að berja saman nefndarálit um aukna kennslu í stærðfræði í grunnskólum. Þegar það hefúr tekist þarf hann að fa álitið samþykkt á landsfúndi og þó það takist er næsta öruggt að Vlðar Frlðþjófsson, for- maður Landssamtaka elnsmáls-félaga sést hér ræða stöðuna í framboðs- málunum við helstu ráð- gjafa sína. Fj 78 •• T * olnir timarit handa íslendingum hnust '97 þingmenn og ráðherrar flokksins muni ekki taka nokkurt tillit til þessara samþykkta. Þetta er ein- faldlega alltof þungt og óskilvirkt kerfi. Ef þessi maður auglýsir hins vegar stofnfúnd Plús og mínus — félags áhugafólks um stærðffæði gemr hann strax á fyrsta degi hitt þá sem em honum sammála og farið að vinna áhugamáli sínu braut- argengi úti í samfélaginu.“ Viðar segir að virkasta umræðan f samfélag- inu fari nú ffam í félögum sem hafa aðeins eitt mál eða málaflokk á stefnuskrá sinni. „Ég tel stofnun Landssamtakanna eðlilegt framhald þess- arar þróunar. Framboð þeirra til sveitarstjórna og þings gæti síðan enn eflt þessa þróun. Mér er það ekkert launungarmál að ég tel að dagar hefð- bundinna stjórnmálaflokka séu liðnir,“ segir Viðar. Stefnumiðin atangast elclri á Aðspurður um hvort stefnuskrár félaganna muni ekki stangast á, til dæmis Húseigendafélagsins og Leigjendasamtakanna eða Vímulausrar æsku og félagsins Lögleiðum kannabis!, segist Viðar ekki óttast hagsmunaárekstra. „Leigjendasamtökin styðja ekki óskilvísa leigj- endur og Húseigendafélagið hefúr síður en svo neitt á móti góðum leigjendum," segir Viðar. „Vímulaus æska berst að sama skapi gegn vímu- efnanotkun ungmenna en það er einmitt eitt af meginbaránumálum Lögleiðum kannabis!, eða svo hefúr einn af stjórnarmönnum þess félags staðfest við mig. Ég held að fólk sem heldur að í samtökum okkar muni hver höndin verða uppi á móti annarri trúi einfaldlega ekki á fólk. Ég trúi því hins vegar að fólk sem hefúr sannarlega áhuga á einhverju máli og helgi því krafta sína komist að réttri niðurstöðu. Ef þetta fólk veit ekki hvað það syngur, ja, þá er illa komið fyrir okkur.“ En hvað með stefhu í hinum starri málum Alþingis, eins og til damis utanríkismálum? „Ég á von á að Grikklandsvinafélagið, Menn- ingartengsl íslands og ráðstjórnarríkjanna, Alli- ance Francaise og önnur slík félög sjái um að móta utanríkispólitíkina," segir Viðar. „Og ædi það verði ekki vinsamlegri og skynsamlegri stefúa en rekin er í dag? Þetta fólk hefúr margt hvert búið í údöndum og skilur því erlend málefni bet- ur en margur stjórnmálamaðurinn." En hvað með klassísk deilumál eins og kvótann? „Ég á von á að Þjóðareign, nýstofnuð samtök fólks um gjaldtöku fyrír fiskikvóta, gangi í Landssambandið. En mér vitanlega er ekki til neitt félag sem styður núverandi kvótakerfi, nema þá samtök útgerðarmanna. Samkvæmt lögum Landssarhtaka einsmáls-félaga geta stéttarfélög hins vegar ekki fengið aðild að LEMF.“ Félag tœkifaehslausra og ferfimál blanlcra________________________ Að sögn Viðars hafa ekki nein af stærri samtök- unum gefið svar um hvort þau vilji standa að sameiginlegu framboði en hins vegar hafi þegar nokkur minni félög tilkynnt þátttöku. Meðal þeirra félaga sem Fjölni er kunnugt um að séu þegar farin að vinna innan LEMF er Félag tæki- færislausra. „Þetta er nýtt félag og við höfúm ekki fengið tækifæri til að kynna það sem skyldi,“ segir Heiðar Tryccvason, formaður félagsins. „Stefnu- mið félagsins er að auka skilning þjóðfélagsins á að það hafa ekki allir fengið tækifæri til að njóta sín í starfi eða leik. Tækifæri í lífinu er nefnilega gjöf eins og góð heilsa. Og okkur í félaginu fmnst að við sem höfúm búið við skert tækifæri ættum að njóta sama skilnings í þjóðfélaginu og þeir sem búa við skerta heilsu.“ Samkvæmt heimildum Fjölnis samanstendur annað félag sem hefúr lýst yfir þátttöku sinni í framboði LEMF mikið til af sama fólkinu og er í Félagi tækiferislausra, en það er Félag blankra. „Við erum einmitt þessa dagana að fara af stað með fjáröflunarherferð svo við gemm betur komið sjónarmiðum okkar á framferi," segir Sverrir Tryccvason, formaður félagsins, en það stendur nú fytir söiu á Manninum með hattinn, táknmynd félagsmanna. „Fyrst í stað munum við leggja áherslu á ferlimálin. Það hafa allir skilning á ferlimálum fadaðra og aldraðra, en við viljum benda á að við emm engu bemr sett en þessir hópar. Ég hef til dæmis oft lent í því að eiga ekki fyrir strætómiða og orðið að snúa við ef ég hef ekki lent á skilningsríkum vagnstjóra. Fólk getur rétt ímyndað sér hvaða tilfmningar bærast í brjósti manns þegar maður stendur á biðstöðinni og sér vagninn síðan halda sína leið.“ Boð og veislur Híns opinbera em Hióaoreign______________________ Eins og gat um hér að ofan bindur Viðar Frið- þjófsson vonir við að nýstofnuð samtök, Þjóðar- eign, gangi til liðs við LEMF. Hann segir að þessi nýju samtök hafi þegar haft mikil áhrif á hugsun- arhátt fólks og sér hafi þannig borist tílkynning um stofnun félags sem beitir svipuðum röksmðn- ingi þótt það hafi valið sér annan vettvang, en þetta er Hið íslenska boðfélag. „Þeir sem standa að boðfélaginu vilja líta á öll boð og veislur á vegum hins opinbera sem þjóð- areign,“ segir Viðar. „Þeir telja það því óþolandi órétdæti að sama fólkið sitji alltaf í þessum veisl- um og krefjast þess að boðsmiðum í þær verði skipt jafnt á alla landsmenn. Þeir hafa reiknað út að ef fúllkomins rétdætis væri gætt fengi hver ís- lendingur eldri en átján ára tæplega tvo boðsmiða á ári sem hann gæti annaðhvort nýtt sér eða sett á skiptimarkað fyrir boðsmiða eða selt á frjálsum markaði. Mér finnst stofnun þessa félags sýna vel hvernig andi einsmáls-félaganna er að breiðast út um samfélagið og smátt og smátt að breyta öllum grundvallarhugmyndum um rétrlæti, eignarrétt, þjóðarrétt og ríkisvald.“ Viðar sagðist líka sjá áhrifin af starfsemi þessa félaga á því fólki sem starfar í þeim. „Þetta er bar- átmglan fólk sem vill láta til sín taka. Það er ekki að tvínóna við hlutina heldur vindur sér þegar í að gera eitthvað í málunum. Smndum finnst mér þetta vera ný og öflugri manngerð en hér hefúr þreyð þorrann öldum saman.“ Ágreiníngur ínnan Landssamtakanna___________________________ Þótt Viðar vildi gera lítið úr þvf varð fyrir faein- um vikum nokkur ágreiningur innan Landssam- taka einsmáls-félaga sem leiddi til þess að þremur félögum var vísað úr samtökunum, Niður með Moggann, 0 á KR og Seljum Seðlabankann. „Brottrekstur þessara félaga snerist ekki um málefnaágreining heldur persónuleg málefni manns sem er formaður í öllum þessum félögum. Þetta mál allt er mannlegur harmleikur,“ segir Viðar. Þegar Fjölnir leitaði til formanns félaganna þriggja neitaði hann að ræða við blaðið undir nafni og setti það skilyrði fyrir viðtalinu að Fjöln- ir yrði ekki auglýstur í Morgunblaðinu. „Ég hef einsett mér að kaupa enga þá vöru eða nýta mér neina þá þjónusm sem auglýst er í Mogganum. Ég er á móti blaðinu og get því ekki af prinsipp- ástæðum stutt þá sem styðja blaðið,“ sagði for- maðurinn. Aðspurður um ágreininginri innan LEMF sagði hann að sér hefði verið gert ófært að starfa innan samtakanna. „Ég fann ekki fyrir neinum hljómgrunni fyrir mínum málum. Mér var það strax ljóst að þetta fólk ætlaði sér að nota Mogg- ann bæði undir greinaskrif og auglýsingar. Þarna voru líka menn sem ég veit að eru KR-ingar eða hallir undir það félag. Mér fannst fólk ekki sína minni sérstöðu neinn skilning. Ég er á móti KR og að neyða mig til samstarfs við KR-inga er ekk- ert skárra en ætla gyðingum sem fórust í útrým- ingarbúðnum að starfa með nasistum. Svo fánn ég það á mér að menn voru eitthvað að gæla við að fa Steingrím Hermannsson til samstarfs út af áhuga hans á umhverfismálum. Ég beið ekki eftir því að menn feru að tala um nauðsyn þess að hafa einhverja þekkta einstaklinga í forsvari fyrir samtökunum og rauk út. Það er því alrangt að ég hafi verið rekinn." En hefur hann trú á framtið Landssamtaka eins- máls-félaga? „Nei, þetta er bara fólk sem vill koma sér áffam á annarra kostnað. Þetta er kosninga- bandalag án stefriumála. Menn setjast niður og vilja fara að raða niður á lista en sinna ekki mál- efnavinnunni. Ég held að það eina sem bindur þetta fólk saman sé vonin um einhvern kosninga- sigur. Þau eru tilbúin að fórna öllu fyrir það markmið. Ég var látinn fjúka fyrstur en ég verð ekki sá síðasti, sagði formaður Niður með Mogg- ann, U á KR og Seljum Seðlabankann. ■
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Fjölnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.