Fjölnir - 30.10.1997, Síða 86

Fjölnir - 30.10.1997, Síða 86
Thomas Huber Sýningin „Eins og ég sagði dðan þd œtlaði ég að vera búinn að koma hillunum burtu dður en sýningin yrði opnuð. Ég ndði því ekki. Hillumar komu hvort eð er ekki Jyrr en siðar inn í mynd- ina. Efþið kœmust mer myndinni sœjuð þið að þœr er mdl- aðar inn í myndina. “ myndrýmið verði gert að nýju lífsrými. Það er af svo skornum skammti nú orðið en í öllum þessum myndum sem við eigum opnast ónotaðar víddir fýrir útþensluþörf okkar. Hef ég yfir ein- hverju að kvarta? Nú kemur fúllt af fólki til að fylla myndrýmin mín. Það hjálpar ömgglega til við að þétta myndrýmin hjá mér. Annað margreynt efni til að þétta myndir er saltið. Flæðið milli tveggja vökva leitar ávallt til þess vökvans sem er mettaður jónum. Þetta er grundvöllur frumustarfseminnar, efna- : skipta almennt. Og þar em sölt nauðsyn- leg. Salt bindur vatn. Það dregur í sig vatn. Þess vegna salta ég myndir mínar. Þið getið séð það hér. Saltið hefúr meira að segja botnfallið. Myndir mínar em mjög saltar. Þéttleiki efnis kemur líka í ljós í gagnflæðisþrýstingnum á yfirborð þess. í söltuðum myndum er yfirborðsþrýstingur- inn vegna gagnflæðisins allt of mikill. Ég held að með vatninu hafi ég fúndið góða skýringarmynd við myndina. Áttið þið ykkur ekki núna skyndilega á því hvað mynd er? Mynd er ílát. Hún er eins og þessi skál með vatni. Það sem er í mynd- inni er inntak hennar. Þetta inntak birtir dýptina. Mynd opnar líka ævinlega dýpt sína til að horfa á. En dýpt gemr hæglega breyst í ómæl- anlegt hyldýpi. Þess vegna em myndir líka hættulegar. Svo margur málarinn hef- r ur staðið á barmi hyldýpis í mynd sinni. Fjöldi félaga minna hefúr steypt sér ofan í þetta hyldýpi. Þess vegna er mikilvægt að sérhver dýpt sé mælan- leg. Mælistika er gmndvallarforsenda fyrir gæfúríkum samskiptum við myndir. Nú er ég eiginlega feginn að ég skyldi ekki hafa fjarlægt hillurnar. Því þá get ég sýnt ykkur þessi þrjú ílát. Ég nota þessa vasa til að hella myndefn- inu inn í myndir mínar. Td að gæta hófs í þessum hluta sköpunarinnar er mynddýptin í vösunum nákvæmlega stillt. Ég get valið úr mis- munandi mynddýptum í samræmi við inntak myndarinnar. Þannig em vasarnir mælistika fýrir dýptina, fýrir djúphygli mynda minna. Það að geta metið dýpt myndar- innar, mótað þennan höfúðþátt í áhrifúm myndarinnar er gmndvallarforsenda fýrir sjálfstæðu sam- bandi við myndir. Afstaða módernism- ans til dýptar var í rauninni klofin. Á þeim bæ fannst mönnum mynddýpt- in gmnsamleg og kusu að eyða henni eftir föngum en leggja áherslu á flöt mynd- anna. Mér finnst þessi afstaða ábyrgð- arlaus í dag vegna : i Auglýsing KTMSa GRÁI KÖTTURINN KAFFISTOFA Opiðvirka daga kl. 07.00-18.00 laugardaga og sunnudaga ki. 09.00-18.00 þess að með henni er lokað fýrir mikilvæga möguleika myndarinnar. Dýptin er eðlis- skyld okkur. Við erum líka líkami og þessi líkami felur í sér dýpt. Innra með okkur opnast ómælanlegar víðátmr sem teygja sig langt út yfir allar skorður sem líkaminn setur. Með því að skoða myndir gætum við hins vegar ^ fúndið mælistiku fýrir eigin dýpt. Þið haldið að ég taki ekki effir því að athygli ykkar hefúr minnkað? Hugur ykkar hvarflar frá viðfangsefninu. Þið eruð fárin að spyrja sjálf ykk- ur hvaða þýðingu þessir blævængir hafi sem hall- ast upp að hillunum. Hvers vegna skyldi allt hafa einhverja þýðingu? Eins og ég sagði áðan þá ædaði ég að vera búinn að koma hillunum burm áður en sýningin yrði opnuð. Ég náði því ekki. Hillurnar komu hvort eð er ekki fýrr en síðar inn í myndina. Ef þið kæmust nær myndinni sæjuð þið að þær er málaðar inn í myndina. Ég mála oft margar myndir samtímis. Ég lendi þá oft í vandræðum vegna plássleysis. Þá getur reynst nauðsynlegt fýrir mig að flytja tmflandi hluti úr einni mynd nfcgr yfir í aðra. Þannig var það með hillurnar. Þetta er stærsta myndin sem ég hef málað undanfarið. Það lá bein- ast við að setja hillurn- ar hér. Enda er listiðkun plássleysisvandamál nú orðið. Hversu mikið rými sæmir listiðkuninni í samfélagi okkar tíma? Þið hljótið að samsinna mér í því að rými fýrir listamennsku í daglegu lífi okkar minnkar stöðugt. Ég má til að nýta vel þetta naumt skammtaða rými sem myndir mínar veita mér. Það gengur ekki án þess að flytja hluti til og frá. Ég verð alltaf mjög feginn þegar efni- viður minn og kraftar gera mér kleift að opna stærri myndrými. Og þegar djúpt og víðáttumik- ið rými opnast mér í mynd sannfærist ég um að listiðkun hafi jafúvel nú á tímum verið skapað rúm til áhrifa. Rúm fýrir listiðkun er það sem alla jafna er kallað list. „List“ er samfélagslegt hugtak. Því er haldið fram að list sé staður til listiðkunar. Af þessu eru svo orðin lista-safn, Ust-gallerí, lista-akademía dregin og staðfest sem fýrirbæri. Ég viðurkenni að ég vonaðist alltaf til að ég myndi finna mér þar rúm sem listamaður. Ég varð fýrir vonbrigð- um, mér leið ailtaf illa á þessum listastöðum. Því þar var hvert rúm þegar skipað list- sagnffæðingum, listheimspekingum, listaverkasölum eða listprófessorum. Það henti sjaldan að þau væru fúll af lífi listarinnar. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað mér létti þegar ég uppgötvaði myndrýmið. Einstaklega viðeigandi rými fýrir iistamann! í eigin verki býr hann sér til sinn sjálfsagða stað. Hér finnur hann líka loksins rétta um- hverfið fýrir sköpun sína. í upphaflegri hrifningu minni hafði ég séð þetta allt í hillingum. Það er óendanlega erfitt, það þarf ótrúlega þolinmæði og kraft til að gera slíkt myndrými aðgengilegt. Og hafi manni um síðir tekist að opna það getur maður gengið inn, hafist handa við hinn eiginlega leyndardóm þess að búa til mynd. Til þess þarf maður fýrst af öllu að koma sér upp birgðum af myndefni. „Þið þarfúist brunns sem þið getið ausið úr,“ sagði ég með litlum árangri við nemendur mína. Komið ykkur upp fjársjóði. Ég varðveiti dýrmætu mynd- efnin mín í myndunum mínum. Slík mynd er svampur. Svampar eru hluti af fýrstu formum lífsins á jörðinni. Það sem þeir drekka í sig hefúr þroskast í langan tíma. Það er ævagamalt. Ég vinn úr myndefninu. Ég móta það. Að móta eitthvað merkir að hlaða það orku. Með formmómn er myndefnið líka hitað. Það þarf að gæta ýtrusm varkárni, það er að segja beita mæli- stiku, við þessa himn. Til þess hef ég þróað hita- mæli. Ég nota hann til að fýlgjast með hita myndefnisins og til að fýlgjast með hitastigi mál- verkanna minna. Líklega hafa læðst að einhverjum ykkar efa- semdir á meðan á údistunum mínum stóð um það hvort það sem ég er að segja sé rétt. Kannski getið þið skrifað undir að þetta eigi við um myndir. En í daglegu lífi séu þessar niðurstöður lítt eða alls ekki nothæfar. Þið lítið svo á að raun- veruleiki myndheimsins sé aðskilinn ffá þeim raunveruleika sem umlykur myndina. Tengsl þessara tveggja raunveruleika em af nákvæmlega sama toga og aðskilnaður olíulitanna og vatnsins. Líkt og annað hefði ekkert með hitt að gera. Með því að hræra í má blanda saman olíu og vatni um stundarsakir. Effir svolítinn tíma skilur lausnin sig. Þannig er hegðun flestra. Myndheimi og lffsraunveruleika hefúr hér í þessum fýrirlestri verið hrært saman. f síðasta Iagi á morgun mun þetta tvennt skiljast að og halda sig hvort sínum megin línunnar eins og vökvarnir tveir hér. Það er hægt að binda olíu og vatn varanlega með hjálp bindiefna. Við það verður til blöndu- efni. Sápa hentar sem bindiefni. Ég er hér með stóran klump af sápu. Það þarf ekki nema lítið af henni til að binda þessa báða vökva. í massa þessa klumps felast hreint óendanlega margar blöndur. Litirnir sem þessi mynd er máluð með em blönduefni, olíulitir sameinaðir vatni. Liturinn sem blönduefni sýnir með þessum hætti fýrirfram hverju myndin sem með honum er máluð gemr áorkað. Liturinn sem fer að ljóma og sýna þýð- ingu sína í myndinni, miðlar sínu eigin gmnd- vallareðli til myndarinnar sem hann er hluti af. Myndin sameinar þann raunveruleika sem hún sjálf opinberar þeim skilyrðum sem við göngum út frá á stefnumóti okkar við myndheiminn. Málverk blandar hina takmörkuðu möguleika til- vistar okkar dýpri horfum sem opinberast okkur í myndum. Svona var ég búinn að hugsa íhugulan endi ræðu minnar. Með tali mínu er ég eigin- lega að reyna að útskýra — einkanlega fýrir sjálfúm mér — að myndir hafi tilgang. En skynjanlegan tilgang hefúr í okkar augum það sem gemr bundist/ tengst öðru, það sem verður hluti af hinni stóru heild samveru okkar. En myndir eru svo hræði- lega einar síns liðs. Hafið þið líka tekið eftir þessum einmanaleika mynda, t. d. á sýningu? Þón þær séu hér þá em þær víðs fjarri. Ef talað er til þeirra svara þær ekki. Þær þegja og þegar verst lætur horfa þær í gegnum mann. Hvers vegna geta myndir ekki talað? Hvers vegna er þessi fjarlægð í andliti okkar á milli augnanna og munnsins? Þessi fjarlægð samsvarar því að við getum lagt höndina þar á milli. Reyndar líka á milli auga og eyra. Hönd kemst líka vel fýrir á milli munns og eyra. Þess vegna þarf maður á höndunum að halda. Með þeim má mála myndir svo að þessi sundmng í andliti okk- ar verði að einni heild. ■ Jórunn Sigurðardóttir pýddi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.